Sælir
Ég held ég hafi póstað þessu á gömlu síðunni... en vegna þess að hann
Öli var að biðja um þetta í sjálfskynningarspjallinu þá datt mér í hug að smella þessu hérna inn.
Grunnurinn að þessari hugmynd er EdWorts Apfelwein Sjá link
http://www.homebrewtalk.com/f25/man-i-l ... ein-14860/
Ég breytti þessari uppskrift til að passa fyrir íslenskar aðstæður og tók smá bragð tékk á íslensku epplasöfunum og endaði á því að Bónus epplasafinn er sennilega sá sem hentaði best í þetta. Það eru örugglega til hellingur af rökum gegn því en þeir taka engin viðbætt efni fram á fernunum hjá sér og mér fynnst hann nú bara svona
eðlilegastur af þessum söfum sem hægt er að versla í kringum 100-250 kr líterinn.
Ég keypti s.s. 25 L af bónus epplasafa og standard Vínger og dextrósa í Ámunni.
25L af eppladjúsnum sett út í bruggfötu, myndi samt mæla með að setja þetta í gler carboy bara vegna þess að þá sérðu betur hvernig þetta gengur alltsaman.
500g af Dextrósa blandað samanvið jafn þétt svo að hann leysist vel upp
1 Pakki vínger úr ámunni.
Svo er þetta látið standa í góðar 4-8 vikur eða þangað til að þetta er orðið almennilega tært. Ég tók þetta eftir 4 og ég verð að játa að þetta hefði mátt vera í góðar 4 í viðbót bara til þess að losna við ýmis viðbótar brögð og svona sem koma með þroskunnini.
Annað sem ég myndi mæla með til að losna við "Sýruna" úr Dextrósanum er að nota hunang eða dökkan sykur í staðinn fyrir Dextrósan. Þá held ég að þú fáir aðeins skemtilegri lit á vínið en þú færð örugglega skemmtilegra bragð.
OG er rétt yfir 1055
FG er 998-1001
Þannig að þetta gerjast frekar þurt.
Það er hægt að bæta við sætu eftirá ef maður fílar ekki svona þur vín en mér fynnst þetta mikil snilld í háu glasi með klaka í smá sumarfíling. En þetta er rétt yfir 8% á styrkleika þannig að maður verður að fara með smá gát með þetta
Þetta kostar allt í allt ca. 3000 kall með sykrinum, djúsinum og gerinu og er alveg þess virði að prufa segi ég!