Ég er svo mikill vöfflukall að ég ákvað að deila þessari fínu og mjög svo einföldu uppskrift með ykkur. Ég verð að viðurkenna að þetta er líka gert í eigin þágu þar sem ég get ekki með nokkru móti munað þessa uppskrift þegar á þarf að halda, þó einföld sé
250-300 gr hveiti
100 gr ljóma smjörlíki
1 dl sykur
4 egg
4-5 dl mjólk
1 tsk lyftiduft
1-2 "tappar" af vanilludropum
1. Eggjum og sykri er blandað saman og þeytt.
2. Smjörlíki er brætt og blandað við.
3. Öllu hinu bætt út í og brært smá saman.
4. Skellt í vöfflujárn með ausu
Svo má setja á rjóma, sykur, síróp, ís. sultu etc. Maple-síróp er í sérstöku uppáhaldi hjá mér... mæli með því