Já sæll...
Ég var aðeins að misreikna lager(ger)stöðuna hjá okkur og var að komast að því að við eigum ekki gerið í bjórinn sem ég er búinn að hlakka til að gera í laaaangan tíma.
Ef einhver á S-23 þá vantar mig svoleiðis fyrir kl. 22.00 á morgun, fimmtudaginn 27. maí.
Mig vantar 4 pakka en ef þú átt 1 þá er það miklu betra en ekkert.
Ég á í staðinn 8 týpur af geri, 10 týpur af humlum, 10 týpur af malti, peninga eða hreinlega S-23 um leið og ég er búinn að panta það.