Page 1 of 1
Dómar í bjórkeppni, önnur umferð
Posted: 3. May 2010 21:32
by kristfin
ég fór og náði í alla bjórana í ölver.
svona til að staðfesta dómana, tel ég rétt að smakka þá alla.
ég ætla samt ekki að fara eftir númerum eða stílum, heldur meira eftir því hvernig þeir koma úr kössunum. verð reyndar að viðurkenna að eftir nokkra ipa og chilli er þetta farið að braðgast allt eins.
þeir sem vilja ná bjórunum sínum aftur, geta nálgast þá hjá mér í brekkutún 1, í kópavogi.
ég er í síma 860 0102.
Re: Dómar í bjórkeppni, önnur umferð
Posted: 3. May 2010 21:46
by Idle
Eigðu mína, ef einhverjir eru; þú ert vel að þeim kominn.

Re: Dómar í bjórkeppni, önnur umferð
Posted: 3. May 2010 23:45
by kristfin
ég er allavega með 3x31 bjór (einvher afföll) hér. ef þeir verða ekki sóttir, þá lenda þeir á mánudagsfundi og verða dæmdir þarf af hópi jafningja

Re: Dómar í bjórkeppni, önnur umferð
Posted: 3. May 2010 23:48
by halldor
Við komum til með að sækja okkar bjóra og mætum svo að sjálfsögðu með smakk á næsta mánudagsfund.
Nöfnin eru:
Halldór Ægir
Ásbjörn S
Óttar Örn
Erlingur B
Ég slæ á þráðinn á morgun eða hinn

Re: Dómar í bjórkeppni, önnur umferð
Posted: 7. May 2010 10:18
by kristfin
afsakaðu halldór að ég hafði ekki tíma til að spjalla í gær. þurfti að rjúka út í nauthólsvík að taka myndir af konunni hlaupa eins og vindurinn
góðu fréttirnar eru að é g er með helling af bjór ennþá.
slæmu fréttirnar að það eru hestamenn að koma í heimsókn til mín í kvöld
allavega. þeir sem vilja geta sótt bjórinn sinn til mín.
Re: Dómar í bjórkeppni, önnur umferð
Posted: 7. May 2010 10:53
by halldor
Allt í góðu

Aðalmálið er að bjórinn komst í öruggar hendur áður en hestamennirnir komust í hann.
Re: Dómar í bjórkeppni, önnur umferð
Posted: 7. May 2010 11:06
by sigurdur
Ég væri til í að bjórinn minn yrði haldinn frá hestamönnum þar sem að þetta voru seinustu flöskurnar af 2 tegundum hjá mér.
Ef það er einhver óvissa með hestamennina, þá skal ég koma og sækja áður en þeir koma.
Ég vil gefa öllum á næsta fundi.
Re: Dómar í bjórkeppni, önnur umferð
Posted: 7. May 2010 12:10
by kristfin
ég er með 50 lítra á krana, þannig að ég ætti að geta haldið virkinu svona framm eftir kveldi
