Page 1 of 1

Rifbeins kælispírall (Rib Cage chiller)

Posted: 3. Mar 2010 21:20
by andrimar
Í kvöld byrjaði ég á skemmtilegu verkefni. Að gera "rib cage chiller" eða rifbeins kælispíral eftir þessari fyrirmynd á HBT. Ég ætlaði fyrst bara að gera klassískan spíral og var búinn að vinda upp koparrörinum mínu( 3/8" ) nú í kvöld og máta það í pottinn minn. Miðað við hvað virtinn náði hátt í 20-25l lögun þá var stór hluti af spíralnum sem stóð fyrir ofan. Hefði að sjálfsögðu getað reynt að auka þvermálið en það hefði þýtt að ég hefði þurft að vinda úr öllu dótinu, finna breiðara snið og byrja uppá nýtt. Verandi latur var það ekki alveg í myndinni, allvega ekki áður en menn ráðfærðu sig við google ;) Þar fann ég áðurnefnda síður á HBT. En myndir segja meira en þúsund orð svo hér kemur smá show.

Image
Hérna er sniðið mitt, 200mm loftræstirör. Búinn að bora gat þarna neðst þar sem annar endinn á rörinu er skorðaður fastur. Ekkert mál að redda sér svona, hringja bara í næstu blikksmiðju og spyrja hvort þeir eigi ekki einhverja 200-350mm röraafganga sem þeir geta selt þér ódýrt.

Image
Búinn að vinda spíralinn.

Image
Ok hérna var búið að ráðfæra sig við google og búið að finna rifbeins spíralinn. Byrjar á því að finna miðjuna á spíralnum og merkja hana.og tekur hann svo í sundur eins og sýnt er á myndinni. Ég geri þetta svolítið öðruvísi þar sem ég vildi ekki vinda ofan af neinu. Í HBT greininni vindur hann af öllu efninu og vindur svo turnana upp í öfugan hring við hvorn annan. Ég vildi sjá hvort ég gæti ekki gert smá beygjugaldra til að fá þetta til að virka með turnana eins.

Image
Næsta skref er að setja sniðið á annan hvorn turninn. Gott að gera það á þeim sem virðis vera lægri, mjög erfitt að taka í sundur akkúrat á miðjunni. Byrja svo að vinda þá aftur saman alveg upp að hvor öðrum. Ef þið sjáið að turninn er að verða stærri en hinn þá er bara að skipta. Þegar þetta er komið er hægt að fara að ýta þeim inní hvorn annan. Ég á því miður ekki mynd af því ferli þar sem ég var einn og þetta var smá maus.

Image
Hér er svo botninn á spíralnum tilbúinn. Svæðið í miðjunni var orðið mjög stíft og erfitt að vinna með á þessum tímapunkti og munaði engu að rörið félli saman neðra megin í S beygjunni í miðjunni. Verandi forvitinn fór ég aftur og ráðfærði mig við google og svarið var allvega nýtt fyrir mér en þið ykkar sem hafið meiri reynslu af málmvinnu en ég vitið þetta sennilega alveg en málið er víst að eftir því sem maður beygir og vinnur kopar meira því meira stífnar hann upp. Næst var að spyrja google hvernig maður lagaði þetta og viti menn þetta fann ég á youtube http://www.youtube.com/watch?v=3jSz11lz8MA" onclick="window.open(this.href);return false;. Þar sem ég á ekki gasbrennara eða logsuðutæki lét ég þetta gott heita og sætti mig bara við að ná ekki betri S beygju en þetta.

Image
Hér er svo toppurinn.

Image
Kominn í 50l pottinn minn :D Þarna ofan á sjáið þið svo inn- og úttakið.

Kostirnir við þessa gerð er eins og áður sagði að meiri kopar kemst í snertingu við virtinn, líka í litlum lögnum í stórum pottum. Hann er aftur á móti aðeins flóknari í smíðum en þessi hefðbundni. Hvað varðar aðferðina sem notuð er á HBT þá hefði hún sennilega ekki virkað þar sem ég bý í lítilli íbúð og frekar erfitt að vinna með 5 metra afundið koparrör. Mín aðferð sleppur við það en setur auka álag á koparinn á ákveðnum stöðum svo erfiðara er að vinna með hann. Aftur á móti er ekkert mál að komast framjá því eigi menn logsuðutæki eða lítinn gasbrennara.

Eina sem á eftir að gera núna er að silfurlóða inn- og úttak. Er einhver ykkar sem á svona lítinn gasbrennara og silfurtin sem væri til í að lána mér eina kvöldstund?

Re: Rifbeins kælispírall (Rib Cage chiller)

Posted: 3. Mar 2010 21:55
by valurkris
Glæsileg smíð hjá þér

Re: Rifbeins kælispírall (Rib Cage chiller)

Posted: 3. Mar 2010 21:58
by Eyvindur
Stórgott... Líst vel á þetta. Hef þessa hönnun í huga ef ég nenni einhvern tíma að smíða nýjan chiller.

Annars verð ég að vera leiðinlegur og benda á að "rib cage" þýðir brjóstkassi. ;)

Re: Rifbeins kælispírall (Rib Cage chiller)

Posted: 3. Mar 2010 22:11
by sigurdur
Flottur kælispírall.

Ég á því miður ekki gasbolta sem að ég get lánað þér, en ég á eitthvað tin.

Re: Rifbeins kælispírall (Rib Cage chiller)

Posted: 3. Mar 2010 22:16
by kalli
Falleg smíð og líkleg til að virka vel. Ég á gashitara, silfur lóðtin og lóðfeiti sem ég notaði til að smíða meskikerið með.

Re: Rifbeins kælispírall (Rib Cage chiller)

Posted: 4. Mar 2010 00:14
by andrimar
Takk fyrir strákar

Eyvindur: Hárrétt hjá þér, vel spottað. Veit ekki hvað kom yfir mig í þessari þýðingu.

Kalli: Væri hægt að dobbla þig í lán á þessum græjum svona eina kvöldstund eða svo? Ég á e-ð af humlum sem langar í virti fljótlega ef þú hefur áhuga. Er með Hallertau Select, Styrian Goldings, Argentine Cascade, Northern Brewer og fullt fullt af Cascade :D

Re: Rifbeins kælispírall (Rib Cage chiller)

Posted: 5. Mar 2010 15:41
by Andri
Ekkert nema fegurð. Ég vissi þetta ekki með annealing, takk.
:skal: