Page 1 of 1
Gerkaup
Posted: 27. Feb 2010 23:03
by Bjarki
Sæl öll sömul.
Hvar pantið þið ger ? Á maður að útbúa startara eða skella geri beint úti virtinn ? Á ég að panta þurrger eða fljótandi ?
Kv, B
Re: Gerkaup
Posted: 27. Feb 2010 23:55
by astaosk
Frábær spurning! hlakka til að heyra svörin frá snillingunum hérna.
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 00:11
by Hjalti
Ég hef verslað það litla ger sem ég hef notað annað hvort hjá vinkjallarin.is (Hef bara fengið Coopers eða Muntons þar)
En ef mig langar í sértækara ger þá hef ég fengið það hjá
http://www.midwestsupplies.com/" onclick="window.open(this.href);return false; mæli með Safale S-33 og S-04 mín uppáhalds
http://www.midwestsupplies.com/homebrew ... t/ale.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 00:14
by hrafnkell
Ég hef pantað á the bruhaus á ebay. Góð verð, sanngjarn sendingarkostnaður og tekur um 3 vikur.
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 01:08
by Eyvindur
Ég hef til dæmis pantað hjá
http://midwestsupplies.com, en þeir bjóða upp á að senda fljótandi ger á ís gegn vægu gjaldi, sem eykur óneitanlega líkurnar á því að það komist óskemmt til skila. Maður þarf minni áhyggjur að hafa af þurrgeri.
Ég myndi byrja á þurrgeri, persónulega. Það er mun einfaldara í notkun, og þurrgerin eru mjög góð, alla jafna. Þú getur fengið ger sem duga í flesta stíla í þurru formi (þótt úrvalið sé óneitanlega betra í fljótandi afbrigðunum).
Það er einmitt starterinn sem er það sem gerir þurrgerið þægilegra - maður þarf ekki að gera starter (og reyndar er það talið verra) með þurrgeri. Ef maður er að gera eitthvað mjög stórt og sterkt, og einn pakki af þurrgeri dugar ekki notar maður bara tvo - þetta er ekki það dýrt.
Eins og ég segi er úrvalið töluvert betra í fljótandi gerinu, og sumir vilja meina að útkoman sé útreiknanlegri (en ég er alls ekki viss um að það sé neitt til í því), en ég er mikill aðdáandi þurrgers.
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 13:43
by halldor
Ef þurrger er nógu gott fyrir Ölvisholt þá er það nógu gott fyrir okkur

Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 14:28
by hrafnkell
Ég var samt svolítið abbó þegar ég kom við í bruggbúð hérna í köben og sá allt úrvalið af bæði þurrgeri og í vökvaformi... Fullur 2m kælir af allskonar mismunandi gertegundum.
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 18:34
by Oli
hrafnkell wrote:Ég var samt svolítið abbó þegar ég kom við í bruggbúð hérna í köben og sá allt úrvalið af bæði þurrgeri og í vökvaformi... Fullur 2m kælir af allskonar mismunandi gertegundum.
Hrafnkell kaupirðu bara ekki slatta af þurrgeri þarna úti og selur okkur hinum? Mig vantar amk bæði lager og ölger.

Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 20:25
by hrafnkell
Ég á reyndar ekki lagerger, en ég er aflögufær á ölger.
Ég á s33, t58, us05, s04, wb06.
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 22:20
by kristfin
ég er vel birgur af þurrgeri. get alveg látið eitthvað fara. á bæði lager og ölger, öll þessi helstu.
ég tek nokkra bjóra í röð með hverju geri, og nota þá gerið áfram.
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 22:35
by astaosk
Ein spurning - kannski örlítið off-topic - en til þess að nota gerið aftur þarf einhverjar sérstakar serímóníur? eða er nóg að skella bara ofan á gerkökuna?
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 22:42
by sigurdur
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 22:45
by astaosk
Jú ég var einmitt búin að lesa þessa grein - en pælingin var hvort þess þyrfti þegar þetta er gert...
kristfin wrote:ég tek nokkra bjóra í röð með hverju geri, og nota þá gerið áfram.
það er, þarf að þvo ef verið er að gera sama bjórinn strax á eftir?
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 22:52
by sigurdur
Tilgangurinn með að þvo ger er að einangra nothæfa gerið frá dauða gerinu / draslinu (break material, humla, annað dót) svo að þú fáir ekki slæmt bragð í nýja bjórinn.
Sumir setja beint á kökuna og gengur bara vel hjá þeim, en ég myndi halda mig við þvottinn.
Þetta er komið svolítið vel off topic, stofnaðu bara nýjan þráð ef þú ert með fleiri spurningar.
Re: Gerkaup
Posted: 28. Feb 2010 22:56
by Eyvindur
Ég myndi segja að ef þeirri reglu er fylgt að trappa sig upp (fara úr minnst áfenga, ljósasta og minnst humlaða og upp í þann sterkari, dekkri og beiskari), og maður passar að gera það á réttum tíma (þegar gerjun er rétt að klárast) væri það í fínu lagi. Hef ekki gert það sjálfur, en hef heyrt vel látið af því.
Re: Gerkaup
Posted: 1. Mar 2010 00:17
by astaosk
Þakka ykkur kærlega fyrir þetta drengir. Þetta svarar spurningum mínum í bili

Geri tilraunir með þetta þegar ég verð komin með einhver almennileg ger í hendurnar.