Page 1 of 1

Tri-Centennial IPA

Posted: 27. Feb 2010 18:35
by Eyvindur
Jæja, nú er ég að bíða eftir suðu.

Ég breytti uppskriftinni lítillega, stækkaði hana upp í 25 og breytti smá. Set inn um leið og tölvan með bruggforritinu kemst í tengingu við netið (eitthvað að klikka). Í öllu falli er ég með pre boil gravity upp á 1.057, sem ætti að vera sirka nákvæmlega passlegt (aðeins of hátt, ef eitthvað, sem maður kvartar sjaldnast yfir).

Mjög skemmtilegt.

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 27. Feb 2010 21:20
by Eyvindur
Jæja, uppskriftin, eftir minni:

6 kg Pilsner
1 kg Munich
700 gr Crystal 40

30 gr Centennial (9,1%) í 60 mín
50 gr Centennial (9,1%) í 20 mín
100 gr Centennial (9,1%) í 5 mín
28 gr Centennial (9,1%) þurrhumlun

Dass af gipsi í meskinguna.
US-05 ger.

Ég endaði með 26 lítra, með OG 1.066. Get ekki kvartað yfir því. Hef ekki komist í að reikna út nýtnina. Lyktin var allavega kjánalega góð - og slatti af humladrullu í botninum á pottinum. Allt í allt stórgóður dagur. Nú er það vinnan.

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 28. Feb 2010 17:48
by BeerMeph
Lýst vel á þennan. Leyfiru humlagumsinu í botninum að fara með í gerfötuna eða passaru að það fari sem minnst með?

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 28. Feb 2010 19:32
by Eyvindur
Ég set það alltaf með, bara. Það er ágætis næring fyrir gerið. Reyndar er BRJÁLÆÐISLEGT botnfall í fötunni, en það er bara stuð.

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 28. Feb 2010 20:32
by Bjössi
Minn farinn að bubbla, svaka góður ylmur af þessu
hlakka til að prófa þennan
Annars ér ég farinn að sturta einfaldlega úr suðutunni í gerjunar tunnu, og læt allt gumsið fara í

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 28. Feb 2010 21:08
by Eyvindur
Það hefur bara góð áhrif. Við Úlfar gerðum tilraun með þetta, side-by-side, 25l með gumsi og 25l án. Það var enginn merkjanlegur munur á humlakarakternum. Eini munurinn sem við sáum var að bjórinn sem fékk gumsið náði betra attenuation, sem gæti stafað af aukinni næringu, en gæti líka bara stafað af því að tveir ólíkir gerpakkar geta hegðað sér örlítið öðruvísi...

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 2. Mar 2010 00:20
by Eyvindur
Úff, þvílík gerjun! Ég segi bara, það er eins gott að ég ákvað að nota blow-off slöngu...

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 2. Mar 2010 14:22
by Bjössi
Eingin óvenjuleg mikil gerjun hjá mér

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 9. Mar 2010 17:24
by Bjössi
Æææ....oopsss...eitthvað klikkaði ég á þurrhumlum í gær, las ranga línu og setti 85gr í stað 40gr

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 9. Mar 2010 17:33
by Eyvindur
Ekkert að því. Missir kannski eilítið meira af vökva í þá, en anganin verður súper.

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 16. Mar 2010 09:09
by Bjössi
Jæja, þá fór þessi á flöskur í gær, og eftir að hafa smakkað þá get ég ekki sagt til um hvort mér finnst hann góður eða vondur, ég hef eldrei smakkað svo hátt IBU verður gaman að bera saman við aðra, OG var 1.010
ég sauð saman um 150gr af sykri við 1,5ltr af vatni fyrir átöppun, vildi þynna aðeins út

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 29. Sep 2010 23:29
by atax1c
Hvernig mynduðu flokka þennan ? English, American eða Imperial ?

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 30. Sep 2010 08:15
by Idle
atax1c wrote:Hvernig mynduðu flokka þennan ? English, American eða Imperial ?
Amerískur IPA. :)

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 30. Sep 2010 11:40
by atax1c
Heheh var þetta heimskuleg spurning ? :D

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 30. Sep 2010 12:03
by Idle
atax1c wrote:Heheh var þetta heimskuleg spurning ? :D
Eigum við ekki bara að segja að hún hafi verið lítið eitt fljótfærnisleg? ;)

Helsti munurinn á enskum og amerískum IPA felst í uppruna hráefna, þ. e. korni og humlum (gerið segir einnig sitt). Að öðru leyti eru stílarnir áþekkir. :)

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 30. Sep 2010 12:26
by atax1c
Ah ok, þá veit ég það ;)

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 1. Oct 2010 13:03
by kristfin
þetta verður flottur bjór hjá þér bjössi, hlakka til að fá að smakka

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 1. Oct 2010 13:44
by sigurdur
kristfin wrote:þetta verður flottur bjór hjá þér bjössi, hlakka til að fá að smakka
Einhvernmeginn efast ég um að það sé mikið eftir frá því í mars (þegar hann gerði bjórinn) ;-)

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 1. Oct 2010 14:51
by kristfin
ég hlyt að vera búinn að tapa því.
ég er trekk í trekk að svara hundgömlum póstum. fannst þetta nefnilega svo sniðugt hvað bjössi var búinn að vera lengi með þennan í lögun
:sing:

Re: Tri-Centennial IPA

Posted: 1. Oct 2010 15:07
by Oli
kristfin wrote:ég hlyt að vera búinn að tapa því.
ég er trekk í trekk að svara hundgömlum póstum. fannst þetta nefnilega svo sniðugt hvað bjössi var búinn að vera lengi með þennan í lögun
:sing:
haha of mikið af öli kannski? :beer: