Page 1 of 1
Húsnæði
Posted: 24. Feb 2010 13:07
by arnarb
Er búinn að skoða eftirfarandi staði:
Salurinn, Kópavogi. Hentar ekki.
Loftleiðir. 1/2 dagur kostar 54.400 kr. Heill 84.400 kr. Laust 1 maí. Tengiliður Elínborg.
Veislusalurinn Lundur, Auðbrekku Kópavogi. 80.000 kr. Starfsmaður í eldhúsi.
Gullhamrar. Ekki laus. Kostar 100.000+ kr.
Að auki var Hjalti búinn að kanna skarfinn: 70.000 kr.
Re: Húsnæði
Posted: 25. Feb 2010 15:42
by kristfin
ég viðraði þessa hugmynd um ölver við félaga minn. hann tók ekki illa í það. ég hitti hann í hádeginu á morgun til að fara yfir smáatriði.
Re: Húsnæði
Posted: 25. Feb 2010 21:39
by Hjalti
Ég var líka að tala við strákinn sem á Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda um þetta og hann vildi ólmur hýsa okkur eitt stykki laugadagskvöld.
Myndum rukka inn og hafa barinn fyrir okkur. Ekki alveg slæmur staður eginlega þrátt fyrir að hann er nú soldið lítill.
Re: Húsnæði
Posted: 25. Feb 2010 21:48
by sigurdur
Hjalti wrote:Ég var líka að tala við strákinn sem á Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda um þetta og hann vildi ólmur hýsa okkur eitt stykki laugadagskvöld.
Myndum rukka inn og hafa barinn fyrir okkur. Ekki alveg slæmur staður eginlega þrátt fyrir að hann er nú soldið lítill.
Fékkstu nokkuð að vita hvað húsið má hýsa marga?
Re: Húsnæði
Posted: 25. Feb 2010 21:55
by Hjalti
Nei, en það væri væntanlega bara skráning fyrirfram ef það er eithvað vandamál.
Re: Húsnæði
Posted: 26. Feb 2010 22:55
by sigurdur
Ég er búinn að vera að vinna frá tæplega 8 í morgun og kom heim fyrir tæpum hálftíma, ég hafði því miður ekki tíma til að kíkja á fjörukránna í dag.
Eru miklar líkur á að nýlenduvöruverslunin verði fyrir valinu á staðsetningu?
Re: Húsnæði
Posted: 27. Feb 2010 01:36
by Hjalti
Held að stuðullin standi í ca. 4.25 núna. Kem með uppfærðan stuðul strax í fyrramálið, en ákveðnar breytingar í stjörnumerkjum gætu lagað stuðulin til muna.
Engin staður líklegri eða ólíklegri, þurfum bara að setjast niður yfir þá í næstu viku einhverntíman.
Re: Húsnæði
Posted: 27. Feb 2010 20:41
by kristfin
ég náði ekki á vertinn í ölveri. en skildi eftir nokkra bjóra hjá honum.
ég er nokkuð viss um að ég fái sal, það er bara spurning um tímasetningar og hvort við yrðum að kaupa eitthvað hjá honum.
ég heyri í honum á mánduaginn
Re: Húsnæði
Posted: 2. Mar 2010 12:22
by arnarb
Fóstbræðrasalur: 60 þús + 2.700 kr/klst fyrir eina manneskju
Re: Húsnæði
Posted: 2. Mar 2010 13:15
by arnarb
Sælir.
Er einhver búinn að tala við Dubliners? Ætla að prófa ð bjalla í þá.
Annars líst mér vel á Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda, svo fremi sem við komum 50 manns inn

Fín staðsetning!
Re: Húsnæði
Posted: 2. Mar 2010 13:59
by kristfin
ég talaði við snillinginn í ölveri.
hann er klár í þetta. við getum valið um 2 sali, eftir mætingu. fáum stóra salinn ef við erum 70+
það eru nokkrir möguleikar í þessu.
við getum keypt mat af honum. það væri þá lambalærishlaðborð. veit ekki alveg hvað það kostar.
við megum koma með bjór með okkur. ég sagði honum að það kæmi bjór frá ölvisholti og mögulega agli sem og sá sem kæmi í keppnina.
ég viðraði þá hugmynd um að bara smella upp krana með skjálfta á barinn hjá honum til framtíðar. ölvisholt mundi kannski láta hann hafa eitthvað prufumagn sem dekkaði salinn. hann tók ekki illa í það.
ef við erum hinsvegar með 70+ og allan þennan bjór, þá þrf hann að fá eitthvað til að vega uppá móti þrifunum. hann ætlaði að hugsa um það.
ef hinsvegar svo bæri við að liverpool og arsenal væru að keppa 1. may klukkan 1800 þá þyrftum við að fresta til 2000.
allaveg. við getum fengið sal þarna, þarf bara að útfæra hvernig hann geti vegið upp á móti sínum kostnaði. honum finnst þetta sniðugt framtak hjá okkur. hann sagði mér líka að hann væri einn af fáum vertum á landinu sem réði sér sjálfur. vífilfell eða egill getur ekkert sagt við hann.
Re: Húsnæði
Posted: 4. Mar 2010 23:25
by sigurdur
Ég talaði við Fjörukráina í dag.
Þeir eru með nokkra sali og geta hýst upp að 350 manns (overkill).
Salurinn hjá þeim er á 120 þúsund ef að við kaupum engar veitingar (krana eða mat).
Ef við kaupum veitingar þá er salurinn ókeypis. Ég er óviss með hversu miklar veitingar.
Þeir eru með samninga við Egils þannig að ef örbrugghúsið hjá Egils verður á staðnum líka, þá verða þeir mun rólegri með að leyfa aðrar veitingar án refsigjalda frá Egils.
Re: Húsnæði
Posted: 9. Mar 2010 15:45
by sigurdur
Hvenær eigum við að klára þetta mál?
Re: Húsnæði
Posted: 9. Mar 2010 16:15
by kristfin
ég var að spjalla við valla. honum leyst ekki illa á ölver. við ætluðum að kíkja þangað einhvern næstu daga og sjá hvort við fáum vertinn til að taka upp einn krana frá ölvisholti. það mundi leysa ýmis mál