ég hefi verið að gæla við að fastsetja eitthvað sniðugt nafn á "brugghúsið" mitt svo ég gæti hannað eitthvað miðasnið til að endurnýta. væri best að ef nafnið væri gott á íslensku og ensku.
eruð þið snillingarnir með einhverjar hugmyndir að nafni eða konsepti?
Attachments
Af því ég er í kópavogi og selir eru sætir
babyseal.png (115.3 KiB) Viewed 7590 times
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
Það er komin hugmynd að nýyrði fyrir Microbrewery, eða Örgerð. Því verður komið á framfæri við rétta nýyrðanefnd. Það gæti sem sé verið Örgerð Kristfins eða Örgerðin Góðglaðir. Svona sem dæmi.
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Klassiker. Dregið af vinnueinkahúmorsgælunafninu mínu (rétt eins og notendanafnið hér), og stafsett á þýska vísu til að passa við eplavínið, en hefur síðan klínst á önnur verkefni.
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
Þökk fyrir það. Hef svona dottið aðeins í að fikta í photoshop samhliða þessu hobbýi, ekki það að maður sé mikið að skreyta flöskurnar, gerir það ekki nema eitt sýniseintak til að eiga og dást að, og svo ef maður er að gefa þetta, en maður hannar samt miða fyrir þetta allt saman, sérstaklega þar sem símalínur í gömlum húsum á Skólavörðuholtinu eru lúnar og nettenging því æði misjöfn eftir dögum, svo maður er eiginlega kominn með miða líka á hluti sem enn eru í gerjun (mjöðurinn) eða jafnvel enn á teikniborðinu (Hobgoblin clone), því hangstíminn í tölvunni getur ekki alltaf verið online
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi