Page 1 of 1
Gérjunar ílát
Posted: 26. Jan 2010 19:27
by Squinchy
Sælir, núna er Ég og Grétarsson að fara skella okkur í AG og ætlum að versla okkur korn í ferðinni góðu, ætlum að stefna á 2x25L lögun og verður líklega Skjaldborgar Ölið sem kristfin saumaði saman fyrir valinu
Hvort væri skynsamlegra að verða sér út um 60Lítra fötu til að hafa allt á sama stað eða 2x30L fötur ?
Re: Gérjunar ílát
Posted: 26. Jan 2010 19:46
by hrafnkell
Skiptir í raun engu máli, bara hvort þig langar. Það getur þó verið skemmtilegt að vera með 2 fötur til þess að geta t.d. þurrhumlað í annarri eða notað sitthvort gerið í föturnar. Leyfir manni aðeins að föndra og kynnast hráefninu.
Re: Gérjunar ílát
Posted: 26. Jan 2010 20:49
by Eyvindur
Mér finnst mjög fínt að vera með tvær fötur, þegar ég geri svona stóra skammta. Eins og áður sagði gefur það möguleika á skemmtilegum tilraunum, en ekki síður myndi ég bara ekki nenna að vera að lyfta og burðast með fulla 60l fötu - 30l föturnar eru nógu erfiðar fyrir bakið.
Re: Gérjunar ílát
Posted: 27. Jan 2010 00:01
by halldor
2 x 30 lítra... engin spurning
Re: Gérjunar ílát
Posted: 27. Jan 2010 18:38
by Squinchy
Já ætli 2x30 sé ekki bara málið

Re: Gérjunar ílát
Posted: 29. Jan 2010 22:23
by Andri
eða 13 stykki gallon jug og nota allskonar ger og allskonar humla í þurrhumlun *slef*
Hver hefur gaman af 60 lítrum af bjór sem bragðast eins!
Hei bara hugmynd

Re: Gérjunar ílát
Posted: 30. Jan 2010 19:31
by Squinchy
Hehe held að ég láti það eiga sig með fyrsta AG skamtinn
