Page 1 of 2

Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 22:06
by kalli
Þá er komið að því. Græjusmíði lokið og búið að kaupa korn og humla. En það er tvennt sem ég er óviss um tvennt:
A) Er uppskriftin OK? Hún er svona:

Style: American IPA

TYPE: All Grain

Taste: (35,0)



Recipe Specifications

--------------------------

Batch Size: 25,00 L

Boil Size: 33,48 L

Estimated OG: 1,068 SG

Estimated Color: 8,2 SRM

Estimated IBU: 68,7 IBU

Brewhouse Efficiency: 75,00 %

Boil Time: 75 Minutes



Ingredients:

------------

Amount Item Type % or IBU

6,77 kg Pale Malt (2 Row) Bel (3,0 SRM) Grain 91,00 %

0,47 kg Munich Malt (9,0 SRM) Grain 6,32 %

0,20 kg Caramunich Malt (56,0 SRM) Grain 2,69 %

80,00 gm Cascade [5,50 %] (60 min) Hops 38,6 IBU

50,00 gm Cascade [5,50 %] (Dry Hop 7 days) Hops -

70,00 gm Cascade [5,50 %] (20 min) Hops 20,5 IBU

100,00 gm Cascade [5,50 %] (5 min) Hops 9,6 IBU

0,33 tsp Irish Moss (Boil 10,0 min) Misc

1 Pkgs SafAle English Ale (DCL Yeast #S-04) Yeast-Ale





Mash Schedule: Single Infusion, Full Body

Total Grain Weight: 7,44 kg

----------------------------

Single Infusion, Full Body

Step Time Name Description Step Temp

60 min Mash In Add 19,42 L of water at 77,2 C 68,0 C

10 min Mash Out Add 7,74 L of water at 96,1 C 75,0 C


Humlarnir áttu að vera Centenniel, en ég hef ekki aðgang að þeim. Ég hagræddi magninu þannig að útkoman verður jafn bitur og upphaflega uppskriftin.

B)
Ég vill fá 25L í gerjunarílátið en magnið sem fæst út úr meskingunni er aðeins 27L. Af því eiga eftir að tapast nokkrir lítrar í uppgufun, tap í Counter Flow Chiller, tap í meskikeri og tap í suðutunnu.
BeerSmith Brew Sheet segir (held ég) að bæta eigi við eins mörgum lítrum í suðutunnuna og þarf til að komast upp í 25L. Er þetta réttur skilningur hjá mér og þarf þetta vatn að vera soðið?

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 22:15
by Eyvindur
Ég myndi miklu frekar bæta við skolvatni. Ég myndi líka komast að því nákvæmlega hvað gufar upp úr pottinum þínum áður en þú gerir nokkuð.

Annars lítur uppskriftin vel út.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 22:35
by kalli
Þakka þér fyrir ábendinguna Eyvindur. Þegar ég skoðaði þetta betur:
Check Time Step
20.1.2010 Clean and prepare equipment.
-- Measure ingredients, crush grains.
-- Prepare 41,23 L water for brewing
-- Prepare Ingredients for Mash
Amount Item Type
6,77 kg Pale Malt (2 Row) Bel (3,0 SRM) Grain
0,47 kg Munich Malt (9,0 SRM) Grain
0,20 kg Caramunich Malt (56,0 SRM) Grain
-- WARNING: Estimated mash size: 32,01 L greater than mash tun volume of 30,00 L
2 min Mash Ingredients
Mash In: Add 19,42 L of water at 77,2 C
60 min - Hold mash at 68,0 C for 60 min
2 min Mash Out: Add 7,74 L of water at 96,1 C
10 min - Hold mash at 75,0 C for 10 min
-- Sparge with 14,08 L of 75,6 C water.
-- Add water to achieve boil volume of 33,48 L
-- Estimated Pre-boil Gravity is: 1,055 SG with all grains/extracts added
Boil for 75 min Boil Ingredients
Boil Amount Item Type
60 min 80,00 gm Cascade [5,50 %] (60 min) Hops
20 min 70,00 gm Cascade [5,50 %] (20 min) Hops
10 min 0,33 tsp Irish Moss (Boil 10,0 min) Misc
5 min 100,00 gm Cascade [5,50 %] (5 min) Hops
-- Cool wort to fermentation temperature
-- Add water (as needed) to achieve volume of 25,00 L
-- Siphon wort to primary fermenter and aerate wort.
-- Add Ingredients to Fermenter
Amount Item Type
1 Pkgs SafAle English Ale (DCL Yeast #S-04) Yeast-Ale
20.1.2010 Measure Original Gravity: ________ (Estimate: 1,068 SG)
20.1.2010 Measure Batch Volume: ________ (Estimate: 25,00 L)
4 days Ferment in primary for 4 days at 20,0 C
24.1.2010 Transfer to Secondary Fermenter
7 days Ferment in secondary for 7 days at 20,0 C
-- Add Ingredients to Fermenter
Amount Item Type
50,00 gm Cascade [5,50 %] (Dry Hop 7 days) Hops
31.1.2010 Measure Final Gravity: ________ (Estimate: 1,018 SG)
-- Bottle beer at 15,6 C with 141,6 gm of corn sugar.
4,0 Weeks Age for 4,0 Weeks at 11,1 C
28.2.2010 Sample and enjoy!

... þá sá ég að það á að nota 14,06 L í skolvatn. En samt ... 19,45 + 7,74 + 14,06 = 41,25. Það er 16 L meira en þessir 25 sem ég á að fá út. Hvað verður um þessa 16 L? Það er ca. 10 L meira en uppgufun og tap í tækjum.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 22:56
by sigurdur
kornið tekur sitt

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 23:03
by Eyvindur
Kornið tekur yfirleitt rétt rúmlega lítra per kíló.

En hvaðan hefurðu þessar vökvatölur? Ég er vanur að reikna út meskivatnið fyrst (miða yfirleitt við 2,6-3 l/kg) og þegar ég er búinn að taka inn í hversu mikið kornið drekkur í sig (forritið gerir það reyndar fyrir mig) reikna ég bara út hversu mikið skolvatn ég þarf þá til að fá rétt magn fyrir suðu.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 23:23
by kalli
Vökvatölurnar koma allar frá BeerSmith. Ég setti upp equipment prófíl og held að hann sé nokkuð réttur. En ef að 7 kg korns taka þetta 7 lítra, þá eru aðeins 3 lítrar eftir óútskýrðir. Kannski þetta sé þá komið.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 23:25
by kristfin
ég hefði ekki valið ipa sem fyrsta bjór. en ef þú ætlar að brugga american ipa, notaðu þá fermentis us05 ger ef þú getur fundið það.

við meskinguna og skolun, þá hef ég notað þá þumalputtareglu að nota 3 lítra per kíló af korni í meskinguna. síðan nota ég 50% meira í skolunina.

þannig að ef ég er með 4 kíló af korni, þá nota ég 4*3=12 lítra til að meskja og 4*3*3/2 = 18 líta til að skola

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 23:32
by Eyvindur
Það er ekkert að því að byrja á IPA. Fyrsti AG bjórinn minn var einmitt amerískur IPA, með Centennial og Cascade, og hann var unaður. Reyndar er IPA góður stíll, þar sem hann felur svo margt sem gæti mögulega farið úrskeiðis vegna humlamagns (en reyndar er mjög fátt sem þú gætir klúðrað, held ég).

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 23:38
by kalli
Takk Eyvindur :skal: . Mér er miklu rórra núna

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 23:41
by kalli
Og takk Kristfin fyrir útlistun á vatnsmagni.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 21. Jan 2010 23:45
by Eyvindur
Svo ég bæti aðeins við...

Ég er vanur að gera skammtaskolun (batch sparge) og skipta vatninu í tvennt, en þó ekki jafnt. Sem dæmi, ef ég væri með 18l í skolvatn myndi ég láta renna af meskingunni, hella svo 10l út í, hræra og láta setjast (ca. 10-15 mín), hringrás og renna af. Svo myndi ég endurtaka leikinn með restina. Ég fæ mjög fína nýtni svona.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 22. Jan 2010 09:28
by kristfin
ég átti ekki við að ipa væri neitt slæmur bjór.

maður þarf hinsvegar að hugsa um pólítíkina og framtíðar "buy-in" á hugmyndina. ástæðan fyrir því að ég bjó til mildan bjór fyrst var að sannfæra swmbo um ágæti framtaksins :sing:

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 22. Jan 2010 12:11
by Eyvindur
Já, þú meinar. Mér fannst þú tala eins og IPA væri eitthvað flókinn sem fyrsti bjór. Var ekki alveg að skilja. En þetta er óneitanlega sjónarmið, því er ekki að neita. Ég bjó svo vel að eiga slatta af belgískum wit úr extract setti (alvöru extract setti) sem ég gat fóðrað SWMBO á eftir að ég gerði minn IPA.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 23. Jan 2010 16:34
by kalli
Jæja, þá er bruggun afstaðin og vökvinn kominn í gerjunarílátið. Þetta gekk bara prýðilega og BeerSmith á stóran þátt í velgengninni. OG mældist 1,068 og 25 lítar runnu í gerjunarílátið, eins og til stóð. En þetta tók sinn tíma. Það var byrjað kl. 19 í gær og lokið um 2 í nótt! Counter-flow chillerinn var frábær. Vökvinn kólnaði niður í 10 gráður og rennslið fínt.

Nú er bara að bíða og vona að vökvinn gerjist.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 11:28
by kalli
Ég færði milli gerjunaríláta í gærkvöldi eftir 4 sólarhringa gerjun. OG var 1,068 en er nú 1,000. Mér finnst það ansi lágt. Átti von á yfir 1,014. Getur þetta verið í lagi? Það var hæg gerjun í gangi í gær áður en við skiptum en nú í morgun var ekkert farið að bobla.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 11:39
by Bjössi
þetta er rosalega lág mæling, en ég man eftir að eg var með 1.002-4 á hveitibjór sem ég gerði ekki fyrir löngu, ég kann ekki skýringu á þessu

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 11:50
by Eyvindur
Hvernig smakkast bjórinn?

Þetta er með því lægra sem ég hef heyrt um, en þarf ekkert að vera óeðlilegt. Hvernig ger notaðirðu?

Þetta gæti mögulega verið sýking. Smakkaðu bjórinn og athugaðu hvort bragðið er í lagi.

Það á ekkert endilega að bubbla í seinna gerjunarílátinu, enda ætti gerjunin að vera búin.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 11:56
by kalli
Ég notaði US-05 ger.

Bjórinn var dálítið rammur, bitur og sterkt humalbragð. Annars veit ég ekki hvernig hann á að bragðast á þessu stigi. Hvernig bragðast sýktur bjór?

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 12:44
by Eyvindur
Enn og aftur: Lesa "How to Brew" frá upphafi til enda!

http://howtobrew.com/section4/chapter21.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Þarna eru svör við því hvernig sýktur bjór bragðast.

Það er ekki óeðlilegt að bjórinn sé í beiskari kantinum fyrst hann kláraði svona rosalega þurr. Þá er minna mótvægi gegn beiskjunni, þar sem það er nákvæmlega enginn sykur eftir.

Hvert var meskihitastigið?

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 12:46
by Eyvindur
Viðbót: Líklega er bjórinn ekki sýktur. Það ætti ekki að fara á milli mála.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 12:57
by kalli
Meskihitastigið var 68 stig og Mash Out 75 stig. BeerSmith stakk upp á þessu.

Varðandi How to Brew, þá er bókin á leiðinni. Ég er búinn að lesa netútgáfuna og mun örugglega lesa bókina frá upphafi til enda. Hlakka til að fá hana.

Fyrst að allur sykur er búinn, hefur eitthvað upp á sig að láta hann gerja lengur? Er ekki bara að tappa á strax eða henda honum? Hvað með að bæta sykri í bjórinn, svo gerillinn hafi eitthvað að smjatta á?

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 13:08
by Oli
Ef þetta er ekki sýking hlýtur skýringin að liggja í meskingunni....nema þú hafir ekki lesið rétt á mælinn.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 13:27
by kalli
Það er hugsanlegt að ég hafi lesið 1,000 í stað 1,010. Ég geri aðra mælingu hið fysta. Takk fyrir ábendinguna.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 13:43
by Eyvindur
Það hlýtur bara eiginlega að vera. Með svona hátt meskihitastig væri meira að segja 1.010 í lægri kantinum, nema þú hafir verið með mikið af sykri þarna. Þetta hljómar ekki eins og sýking, því hann væri væntanlega eldsúr á bragðið ef hún væri búin að djöflast svona mikið í bjórnum.

Og nei, leyfðu bjórnum að eiga sig í minnst 2 vikur í allt áður en þú tappar á flöskur. Þótt gerjunin sjálf sé búin á gerið eftir að taka til eftir sig. Ég hef það fyrir reglu að tappa aldrei á fyrr en eftir 3-4 vikur, stundum lengur.

Re: Minn fyrsti bjór - er ég á réttri leið?

Posted: 29. Jan 2010 14:44
by kalli
Bjórinn var alls ekki súr á bragðið.
Ég róa mig þá bara niður og fylgi þínum ráðum um að bíða með átöppun í 2 - 3 vikur í viðbót. Takk fyrir ráðleggingarnar.