Page 1 of 1
Gamalt reykt malt
Posted: 17. Dec 2009 15:20
by ulfar
Fékk ég reykt malt snemma eða um mitt ár 2008 í Ölvisholt og kom það þá í opnum poka. Ég veit því ekki nákvæmlega hversu gamalt það er en geri ráð fyrir að pokinn sé í dag búin að vera opinn en sæmilega vel geymdur í ~ 2 ár.
Þetta malt notaði ég fyrir jólin 2008 og svo aftur núna 2009. Ég er búin að drekka allan bjórinn frá 2008 ætla þó að draga eftirfarandi ályktanir.
Reyktur jólabjór 2008 : Mikil reykt lykt og mikið reykt bragð. Tókst mjög vel.
Reyktur jólabjór 2009 : Mjög vel greinanleg en ekki sterk reykt lykt. Reykt bragð í meðallagi. Tókst ekki síður vel.
Ályktun: Gamla reykta maltið var fínt til bjórgerðar en maltið hafði tapað nokkrum reyk og þá ylminum hraðar en bragðinu.
Re: Gamalt reykt malt
Posted: 17. Dec 2009 17:38
by halldor
Mikið væri ég til í að skiptast á Reytum bjórum við tækifæri

Hrotti, sem er jólabjórinn okkar í ár, er reykt öl sem við bindum miklar vonir við. Hann lofaði góðu eftir viku á flöskum en í dag eru tvær vikur liðnar og því ekki úr vegi að prófa hann um helgina.
Úlfar - ertu til í að halda 2-3 flöskum til hliðar og skipta við okkur Hebrew menn?
Ég er ekki alveg klár á því hversu gamalt reykta maltið er sem við notuðum í hann en ég held að það hafi verið keypt í Ölvisholti þegar Fágun fór þangað í hópferðina.
Re: Gamalt reykt malt
Posted: 19. Dec 2009 01:42
by Eyjo
Ég get vottað það að reykti bjórinn hjá Úlfari stendur fyrir sínu!
Ég setti kílo af 1-2 ára gömlu reyktu malti í jólabjórinn hjá mér, mjög dauft reykbragð en það nær þó í gegn og gefur gott tvist.
Re: Gamalt reykt malt
Posted: 19. Dec 2009 08:29
by halldor
Um 50% af maltinu í Hrotta er reykt. Okkur langaði að byrja í miðjunni og auka svo eða minnka reykta maltið í næstu útgáfu eftir því hvernig þessi kemur út. En eins og þið segið þá skiptir aldur á reykta maltinu einnig miklu máli þannig að þetta er vandasamt.
Lausnin á þessu er að reykja sitt eigið malt

Einn í hópnum er að fara að smíða sér reykofn fyrir malt á næstunni.
Re: Gamalt reykt malt
Posted: 19. Dec 2009 13:21
by Eyvindur
Já, reykti bjórinn hans Úlfars er rosalegur. Ég verð klárlega að fara að leggja í reyktan bjór við tækifæri.
Re: Gamalt reykt malt
Posted: 30. Dec 2009 20:56
by Andri
Mikið þykir manni leiðilegt að sjá svona lof um annara manna bjór, manni langar bara að sníkja einn.
Re: Gamalt reykt malt
Posted: 2. Jan 2010 12:30
by Eyvindur
Úlfar hlýtur að mæta með smávegis á fundinn á mánudaginn.
Re: Gamalt reykt malt
Posted: 3. Jan 2010 18:06
by ulfar
Ég mæti með smakk á fundinn...að sjálfssögðu
Re: Gamalt reykt malt
Posted: 5. Jan 2010 01:14
by Idle
Þessi er unaðslegur. Vantar svolítið upp á ilminn, sem er líklega þessu aldraða malti um að kenna, en yndislegur engu að síður.
Ég hef gengið með uppskrift að einum reyktum allt frá því ég bragðaði Aecht Schlenkerla, og þessi nægir vonandi til að ýta mér fram af brúninni og brugga. Nú háir gerskortur mér ekki lengur, og því engar afsakanir í boði (aðrar en leti, sem er vissulega gild og góð).
Vil árétta það sem ég nefndi við Úlfar á fundinum í kvöld; uppskriftin mín byggir á 80% reyktu malti, ekki 70%.
