Page 1 of 1
AG #2 - Hveitibjór
Posted: 14. Dec 2009 12:29
by hrafnkell
Hvernig líst mönnum á þetta? Er þessi uppskrift vænleg til árangurs? Frekar stórt batch þar sem ég nenni ekki að eiga smotterís afgang af hveiti. Betra að nota það bara allt núna.
Code: Select all
Style: Weizen/Weissbier
TYPE: Partial Mash
Taste: (35.0)
Recipe Specifications
--------------------------
Batch Size: 30.00 L
Boil Size: 39.12 L
Estimated OG: 1.050 SG
Estimated Color: 3.6 SRM
Estimated IBU: 13.3 IBU
Brewhouse Efficiency: 70.00 %
Boil Time: 60 Minutes
Ingredients:
------------
Amount Item Type % or IBU
5.00 kg Wheat Malt, Pale (Weyermann) (2.0 SRM) Grain 74.07 %
1.75 kg Pilsner (Weyermann) (1.7 SRM) Grain 25.93 %
40.00 gm Hallertauer Hersbrucker [4.00 %] (60 min)Hops 13.3 IBU
1 Pkgs Hefeweizen Ale (White Labs #WLP300) Yeast-Wheat
Mash Schedule: Single Infusion, Medium Body, Batch Sparge
Total Grain Weight: 6.75 kg
Re: AG #2 - Hveitibjór
Posted: 14. Dec 2009 12:42
by Idle
Ég get ekkert fundið að þessu, og efast alls ekki um að þessi verði ágætur. Í þýskum hveitibjórum er hlutfallið af möltuðu hveiti allt að 80%, og því ekkert út á það að setja.
Re: AG #2 - Hveitibjór
Posted: 14. Dec 2009 13:03
by kristfin
þetta ætti ekki að geta klikkað. allt innan marka.
ef þú hefur ekkert planað, þá hefði ég gaman af því að fá afleggjara af gerkökunni í lokin

Re: AG #2 - Hveitibjór
Posted: 14. Dec 2009 13:19
by ulfar
Eitt getur klikkað. Stuck sparge. Ég ætla ekki að hræða þig of mikið en gefðu þér GÓÐAN tíma í skolunina.
Re: AG #2 - Hveitibjór
Posted: 14. Dec 2009 14:00
by hrafnkell
ulfar wrote:Eitt getur klikkað. Stuck sparge. Ég ætla ekki að hræða þig of mikið en gefðu þér GÓÐAN tíma í skolunina.
Já, ég hafði hugsað mér að reyna að vera þolinmóður með að láta leka af korninu

Verður forvitnilegt að sjá hvernig þetta gengur.
Re: AG #2 - Hveitibjór
Posted: 14. Dec 2009 15:13
by Oli
Passaðu þig á að skola ekki of mikið og of lengi samt
Uppskriftin að mínum hveitibjór var ekki ósvipuð þinni, ekki eins mikið hveitimalt að vísu en bjórinn kom því miður illa út sbr.
http://www.fagun.is/viewtopic.php?f=7&t=396" onclick="window.open(this.href);return false;
Athugaðu pH gildið hjá þér við meskinguna, ef það er hátt er spurning um að setja smávegis af gipsi í meskinguna og í skolunina.
Re: AG #2 - Hveitibjór
Posted: 14. Dec 2009 22:42
by hrafnkell
Jæja... Þá er þessi kominn í gerjun. OG varð aðeins lægra en ég hafði vonað, eða um 1.042. Sem þýðir uþb 60% efficiency. Getur hátt pH gildi valdið því? Hitinn í meskingu var um 67°C í byrjun en datt niður í um 65°C í lok hennar.
Engin vandamál með stuck sparge.
Núna er bara spurning hvernig bjór ég á að gera næst?
Ég á:
- 5kg af munich
- 4kg af munich 2
- 3kg af pilsner
- 5kg af pale ale
Einnig á ég:
- 50gr cascade
- 60gr hallertauer
- 100gr styrian goldings
Hugmyndir?
Re: AG #2 - Hveitibjór
Posted: 14. Dec 2009 23:34
by Eyvindur
Já, ég held að hátt ph gildi geti valdið lægri nýtni - sem er einmitt hluti af ástæðu þess að ég set undantekningalaust slettu af gipsi út í meskingu á ljósum bjórum (dökkt malt lækkar ph gildið, þannig að það er óþarfi í þeim tilfellum). Of basískt vatn getur (skilst mér - sel ekki rándýrt) lækkað nýtni, dregið fram tannín og gert beiskjuna úr humlunum full harkalega. Þetta hef ég heyrt... Hafðu þó ekki áhyggjur. Þetta verður eflaust mjög fínt. Þetta OG er ekkert út úr kortinu, meskingin hefur ekki verið neitt fáránleg hjá mér þegar ég hef gleymt gipsinu, aldrei fengið tannín, og þetta með humlana fer fyrst að skipta máli þegar um mjög beiska bjóra er að ræða. SÁEÖFÞH.
Ég myndi pæla í góðu ljósöli eða IPA, miðað við það sem þú ert með. Þig vantar þó tilfinnanlega eitthvað kristalmalt upp á framhaldið, myndi ég segja.
Re: AG #2 - Hveitibjór
Posted: 14. Dec 2009 23:44
by hrafnkell
ah já munich 2 þá meinti ég caramunich 2 - Valgeir hleypti mér ekki frá sér nema ég tæki með amk eitthvað crystal malt
