Page 1 of 1

2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 14:26
by hrafnkell
Datt í hug að benda fólki á þennan ágætis díl þar sem það virðast margir vera að íhuga að búa sér til plastsuðudall.

Það var til nóg af kötlunum í smáratorgi áðan, ég keypti mér 3stk þar sem ég á líklega ekki eftir að geta haldið aftur að mér að prófa allgrain fyrr en síðar - Sérstaklega þar sem ég á leið framhjá ölvisholti á morgun :shock: :roll:

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 14:28
by Idle
Þakka þér fyrir ábendinguna! Keypti einn í fyrrasumar hjá þeim á 1.490 kr, átti svo leið þarna um fyrir um hálfum mánuði, og þá kostuðu þeir 2.990 kr. Alls ekki útilokað að ég bregði mér í búðir í mánuðinum með þessa vitneskju í farteskinu. ;)

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 16:17
by hrafnkell
Það eru reyndar líka til einhverjir katlar þar á um 3000kr. Þessi var í bæklingnum og því líklega eitthvað tilboð sem endist bara í stuttan tíma.

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 16:26
by kristfin
hvernig líta þessir katlar út. þeas, hvernig eru elementin fest?

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 20:23
by Idle

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 20:42
by sigurdur
Þetta svarar ekki fyrirspurninni hjá Kristjáni, elementin úr svona kötlum eru fest með 3 skrúfum með fínum skrúfgang. (a.m.k. elementin úr mínum kötlum)

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 20:48
by Idle
sigurdur wrote:
Þetta svarar ekki fyrirspurninni hjá Kristjáni, elementin úr svona kötlum eru fest með 3 skrúfum með fínum skrúfgang. (a.m.k. elementin úr mínum kötlum)
Hálfkák, nafni sæll. Þetta svaraði væntanlega fyrri spurningunni, um hvernig gripurinn liti út. Svo kom pósturinn með humlana mína, og ég kláraði ekki svarið. ;)

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 22:05
by hrafnkell
Ég skal taka einn í sundur og taka myndir fyrir ykkur.. Stay tuned :)

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 22:25
by hrafnkell
Ágætis pakkning á þessu og lítið mál að koma fyrir á plastíláti sýnist mér.

Image

Image

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 22:40
by sigurdur
Ég held að það sé ein framleiðsla á þessum tækjum, þetta er það sama og mínir katlar (2 mismunandi tegundir). Það var ekkert mál að koma þessu fyrir. Sjá þráðinn um ágæti plastsuðupotta

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 22:53
by Idle
Einmitt þráðurinn sem ég var að leita að í dag!

Komst að því að eldavélin er á 20A tengli, og síðan er annar 20A tengill fyrir ofninn. Nema eldavélin og ofninn eru sambyggð, og á sama tenglinum, svo ég hef einn lausan 20A til að leika mér með. :D

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 23:02
by hrafnkell
Bílskúrar eru líka gjarnan með frekar rífleg öryggi :)

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 15. Oct 2009 23:03
by Idle
hrafnkell wrote:Bílskúrar eru líka gjarnan með frekar rífleg öryggi :)
Ég á stæði í bílageymslunni hérna - en hún er ekki sérstaklega hentugur staður til bjórframleiðslu. Annað væri ef ég ætti minn eigin bílskúr. :)

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 16. Oct 2009 19:01
by hrafnkell
Ég hringdi í saltkaup í dag og ætlaði að redda mér 1-2x 60 lítra tunnum hjá þeim til að geta komið hitaelementunum fyrir. Kom í ljós að þær eru búnar og einhverjar vikur í næstu sendingu. Kíkti í byko og sá sambærilega tunnu á 15þús. Svimaði örlítið og langaði helst að ganga örna minna í tunnuna í mótmælaskyni. (skini?)

Er einhver annar staður þar sem maður getur fundið ca 60 lítra ílát með loki á þolanlegu verði? (um eða undir 5þús)

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 16. Oct 2009 19:11
by sigurdur
Prófaðu bara að hringja í fiskifyrirtæki og spurðu þá hvar þeir fá sína ílát.

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 18. Oct 2009 18:24
by kristfin
í gamla daga þegar ég var í magnbruggun var gott að eiga síldarútflutningsnefnd. þar fékk maður tunnur og sykur fyrir lítið.

en sigurplast. þeir eru með tunnur. veit ekki hvað þær kosta þó

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 18. Oct 2009 19:16
by sigurdur
kristfin wrote:í gamla daga þegar ég var í magnbruggun var gott að eiga síldarútflutningsnefnd. þar fékk maður tunnur og sykur fyrir lítið.

en sigurplast. þeir eru með tunnur. veit ekki hvað þær kosta þó
Þegar ég keypti 60L tunnu frá þeim þá kostaði hún ekki meir en 2700 kr.

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 19. Oct 2009 15:22
by hrafnkell
Hringdi í sigurplast, 60 lítra fata kostar 2825kr og ásmellt lok 722kr. Samtals 4416kr með vsk.

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 19. Oct 2009 15:36
by valurkris
eru þetta eins tunnur og eru í saltkaup?
Eru þær nægilega þykkar til að þola suðu í klukkutíma án þess að vera alltof mjúkar?

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 19. Oct 2009 16:26
by sigurdur
sigurdur wrote:
kristfin wrote:í gamla daga þegar ég var í magnbruggun var gott að eiga síldarútflutningsnefnd. þar fékk maður tunnur og sykur fyrir lítið.

en sigurplast. þeir eru með tunnur. veit ekki hvað þær kosta þó
Þegar ég keypti 60L tunnu frá þeim þá kostaði hún ekki meir en 2700 kr.
Ég var eitthvað aðeins að rugla hérna, ég meinti tunnu í saltkaup.

Ég veit ekki hvernig 60L tunnurnar frá Sigurplasti eru, en plastföturnar (32L) frá þeim er úr PP (Poly Propylene) og þola slatta af hita (125°c). Hinsvegar þá eru þær mun þynnri en 60L frá Saltkaup þannig að erfitt er að segja til um hversu sveigjanlegar þær eru..

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 19. Oct 2009 16:47
by hrafnkell
Ég hringdi bara til að athuga þetta, þekki ekki hvað þær eru þykkar eða neitt.. Mér líst betur á tunnurnar úr saltkaup með skrúfuðu loki, en ég er frekar óþolinmóður að koma pottinum mínum í gang þannig að það getur vel verið að ég geri mér ferð í sigurplast.

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 19. Oct 2009 20:12
by sigurdur
hrafnkell wrote:Ég hringdi bara til að athuga þetta, þekki ekki hvað þær eru þykkar eða neitt.. Mér líst betur á tunnurnar úr saltkaup með skrúfuðu loki, en ég er frekar óþolinmóður að koma pottinum mínum í gang þannig að það getur vel verið að ég geri mér ferð í sigurplast.
Ég held að plastið megi ekki vera minna en 3mm að þykkt svo að það leki ekki meðfram hitaelementinu ef þú ert með element úr hraðsuðukatli.

Re: 2000w hraðsuðuketill á 1.990kr í rúmfatalagernum

Posted: 24. Oct 2009 13:42
by hrafnkell
Fór í byko breiddinni í dag og fékk tæplega 30l kælibox á um 3400kr þar í útsölumarkaðnum. Þeir áttu líka minna box á minni pening og svo enn stærra á 11.000kr. Ekki alslæmur díll og það stefnir í að ég verði kominn með meskiker, suðupott og allt sem ég þarf í all-grain á um 10-12.000kr.

Eina sem ég sé fram á að verður pínu "vesen" er kælingin, en ég held ég noti bara ís í fyrstu tilraun og splæsi svo seinna í koparrör í immersion chiller.