Keppnisreglur eru svipaðar og í fyrra:
- • Einungis heimabruggaðir bjórar sem bruggaðir eru af keppendum eru gjaldgengir í keppnina. Með heimabruggaðir er átt við að bjór sé ekki bruggaður í græjum sem tilheyra atvinnubrugghúsi.
• Ef fleiri en einn aðili kemur að bruggun bjórsins skal tiltaka alla bruggara eða hópnafn. Ef bjór hlýtur viðurkenningu eða vinnur til verðlauna teljast allir bruggarar/hópurinn sem sigurvegari ef við á.
• Skila skal inn 6 (sex) 330ml flöskum eða stærri af hverjum bjór. Síðasti skiladagur er 16. maí. Bjór skal skilað til formanns Fágunar eða brew.is.
• Keppanda ber að skila inn skráningarblaði fyrir hvern bjór og líma sérstaka keppnismiða á hverja flösku. Flöskur mega ekki vera merkar á neinn þann hátt að hægt sé að tengja þær við keppendur. Skráningarblað væntanlegt innan tíðar.
• Þátttökugjald er kr. 2.500 á hvern innsendan bjór. Bjór er ekki gjaldgengur í keppnina nema gjald sé greitt að fullu.
• Sérhver félagsmaður í Fágun sem greitt hefur félagsgjald fær undanþágu á þátttökugjaldi fyrir allt að tvo bjóra sem sendir eru í keppnina, að því uppfylltu að félagsmaðurinn sé sjálfur bruggari eða meðbruggari bjórsins, og að bjórarnir tilheyri ekki sama keppnisflokki.
• Keppandi skal tilreina stíl fyrir hvern innsendan bjór. Stíllinn skal vera vel lýsandi fyrir bjórinn. Einnig skal tiltaka sérstök aukaefni sem notuð eru við gerð bjórsins sem hafa áhrif á bragð eða áferð hans. Dæmt verður meðal annars eftir því hversu vel bjórinn fellur að lýsingunni.
• Innsendum bjórum er skipt í 3 flokka er tilgreindir eru hér að neðan. Keppanda ber að tilgreina í hvaða flokk bjórinn fellur.- ▪Fyrsti flokkur eru hveitibjórar, þ.e. allir bjórar sem falla undir flokk (5)24 í 5. kafla viðauka A í BJCP leiðbeiningum frá 2015.
- A. 10A. Weissbier
B. 10B. Dunkles Weissbier
C. 10C. Weizenbock
D. 24A. Witbier
E. 27. Historical Beer (Roggenbier)
F. 1D. American Wheat Beer
▪Þriðji flokkur eru aðrir bjórar (opinn flokkur). - A. 10A. Weissbier
• Viðurkenningar verða veittar fyrir 1. til 3. sæti í hverjum flokki.
• Besti bjór keppninnar verður valinn einn af þeim 3 bjórum sem hafna í 1. sæti í hverjum flokki.
• Aukaverðlaun verða veitt fyrir frumlegasta/áhugaverðasta bjórinn að mati dómnefndar.
• Aukaverðlaun verða veitt fyrir besta bjórnafnið að mati dómnefndar. Ekki er skylda að nefna bjóra.
• Aukaverðlaun verða veitt fyrir besta heildarútlit á flösku að mati gesta á keppniskvöldi. Ekki er skylda að taka þátt í þessari hliðarkeppni en ef keppandi kýs að taka þátt skal skila inn einni auka flösku (7. flaskan) af bjór sem sendur er í keppnina, sem má vera merkt eða útfærð á hvern þann hátt sem keppandi kýs.
• Að lokinni keppni verða birt dómarablöð með dómum um alla bjóra sem tóku þátt í keppninni.
• Uppskriftir bjóra sem sendir eru í keppnina verða eign keppanda. Mælst er til að sigurvegarar birti uppskriftir á fagun.is.
• Ef vafi leikur á að innsendur bjór uppfylli skilyrði þessi hefur dómnefnd loka-ákvörðun varðandi hæfni bjórsins til að taka þátt í keppninni. Ef bjór er vísað úr keppni fæst þátttökugjald ekki endurgreitt. - ▪Fyrsti flokkur eru hveitibjórar, þ.e. allir bjórar sem falla undir flokk (5)24 í 5. kafla viðauka A í BJCP leiðbeiningum frá 2015.