Ölvisholt er búið að bjóða okkur að koma í heimsókn til sín föstudaginn 20. janúar að smakka þorrabjórinn. Áætluð brottför er klukkan 17:00 frá BSÍ og heimkoma um 22:00. Ferðin sjálf verður ókeypis fyrir meðlimi Fágunar 2017 en kostar 2000kr fyrir aðra, eins og alltaf allir velkomnir.
Við hvetjum alla til að mæta með góða skapið og nestaða fyrir ferðina, getum þó skoðað möguleikan á pítsuhlaðborði í Ölvisholti ef áhugi er fyrir því. Skráning fer fram hér og er bindandi.