Í tilefni Menningarnætur munu Fágun og Lókurinn boða til veislu á leikvellinum á Klambratúni milli 14:00 og 17:00, eða á meðan veður leyfir. Félagsmenn Fágunar munu sjá um drykkjarföngin en Lókurinn pylsurnar. Gos verður í boði fyrir börn og bílstjóra. Allir velkomnir, stórir sem smáir, ungir sem aldnir. Fágun mun byrja gleðina á að vígja sína fyrstu dælustöð í samstarfi við Brew.is því hvetjum við alla til að mæta og skála með okkur í tilefni þess.
Ekkert gjald verður á veitingunum en tekið er á móti frjálsum framlögum.
Félagsmenn Fágunar eru hvattir til að mæta með kút til að bjóða upp á. Svarið endilega þessum þræði og láta vita hvað sé í kútnum fyrir utanumhald. Þar sem dælustöð Fágunar verður á staðnum verður hægt að mæta einungis með kútinn, gas og línur verða á staðnum. Við munum reyna eftir fremsta megni að koma öllum fyrir á dælustöðinni en getum þó ekki lofað öllum.
Kútar:
eddi849 - American Session IPA
MargretAsgerdur - English Session IPA og Cider
Æpíei - Fönkí Sömmer wit brett og Barely Illegal saisonette
thorgnyr - Sléttsama hefe
Classic - Apaspil American Pale Ale
Sigurjón - Eiríkur Rauði Amber og þurrhumlaður Bee Cave
Eddikind - Krækiberja IPA
gm- - IPA
HrefnaKaritas & Ernir - Belgian Blonde og Pale Ale
Plimmó - 1-2 kútar
Karlp - 1-2 kútar
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
I've got one full keg and two half kegs gassing here, but they're not cold. Does anyone have spare fridge space for at least one keg? Or some appropriate bucket/something to fill with ice?
on tap: Nothing! new beer fridge in planning
gassing/maturing: bad beers growing up to maybe be good beers
Fermenting: nothing!
Endilega slepptu því að mæta með kolsýruna! En væri snilld ef þú getur komið með picnic línu þar sem pin lock tengin eru ekki til (og gaurinn til að skrúfa á gaslínuna) Við getum tengt 6 í kolsýru þó við höfum bara fjóra krana á dælustöðinni.