Komið þið sæl,
Bjarki heiti ég og er nýr meðlimur í Fágun. Mætti á síðasta fund á Mikkeller og líst mjög vel á félagið. Hlakka til að mæta á keppnina til að sjá hvernig hún fer fram.
Ég hef verið að prófa mig áfram í bjór-bruggi í rúmlega ár núna með breytilegum árangri og er 17. lögunin í gerjun núna. Fyrst um sinn notaði ég BIAB aðferð sem er að mörgu leiti mjög góð en langaði að breyta til og spara mér pokakreistingarnar þ.a. nú er ég kominn með 10 gallona kælibox fyrir meskingu og nota batch sparge aðferð. Þarf að henda inn myndum af setup-inu inn á "Heimasmíði og græjur" við tækifæri. Hef reyndar talsvert af spurningum varðandi nýtingu og annað sem tengist þessari aðferð þannig að ef einhver annar er að nota svipaða aðferð þá væri vel þegið að fá góð ráð.
Kveðja,
Bjarki