Mánaðarfundur nóvembermánaðar verður haldinn 2.nóvember á MicroBar Vesturgötu 2 (kjallara) kl.20:00.
MicroBar eru að opna á nýjum stað og verður spennandi að sjá útkomuna.
Fundargerð:
15 manns mættu á nýja MicroBar. Töluverð stílbreyting frá fyrri stað og leyst fólki nokkuð vel á.
Staðurinn er með 14 krana og bjórarnir á þeim koma frá Gæðingi, Kalda, Ölvisholti, Borg og Steðja.
Fágun fær 200kr afslátt á bjór.
- Mikil spenna virðist vera fyrir Bruggjunni Bruggbar. Einhverjir félagsmenn hafa farið þangað í hópferðir og hafa ekkert nema gott um staðinn að segja.
- Steini hjá MicroBar tók okkur í skoðunarferð um staðinn. Mikið um gersemar í geymslunni hjá honum. Þegar staðurinn flutti þá komu upp nokkrir 'tíndir' bjórar þannig að það er vel þess virði að gera sér ferð á Micro og spurja um geymslubjórana.
Einnig sýndi hann okkur inn í portið bakvið staðinn þar sem byggð var viðbygging sem geymir kútana.
Steini er nýkominn frá Two Roads þar sem hann var lærlingur. - Borið hefur á verðsamkeppni á korni á markaðnum síðust misseri, heimabruggurum til góðs.
- Skiladagur fyrir Jóladagatal Fágunar er miðvikudagurinn 25.nóvember.
Hægt verður að skila bjórunum til Brew.is í Askalind 3.
Stefnt er á að hafa Friðarhúsið opið frá 16:00 og getur fólk hist þar og náð í 'dagatölin'. - Stefnt er á að halda Gorhátíð 27.nóvember.
Aðalþemað verður pörun á ostum við bjóra. Einnig verður áhersla á jólabjórasmakk.
Það er verið að vinna úr smáatriðinum og verður þetta nánar auglýst síðar. - Heimabruggtúrinn gékk mjög vel. Um 10 gestir komu í gönguna, þar af 1 félagsmaður.
10 manns var ágætis stærð á hóp, talað um að 15 manns væri ágætt viðmið sem hámarksfjöldi.
Ákveðið var að greiða bruggurunum 8000kr á haus fyrir kostnaði og ómakið.
Miklir möguleikar opnast við þetta, t.d. að halda samskonar ferð í öðru póstnúmeri eða bæjarfélagi (Hafnarfirði). - HrefnaKaritas er að vinna að breytingum á heimasíðunni. Nútímavæða á síðuna, bæta forsíðu, gera uppskriftargagnagrunn og fleira. Virtist það leggjast vel í hópinn.
- æpíei var með fræðsluerindi um refractometer/ljósbrotsmæli
- æpíei kom með reyktan lager og Biere de garde og Hrafnkell mætti með IPA til smakks