Ef einhverjum vantar kælispíral þá fékk ég góðan prís á eirröri, og get því boðið svona kvikindi á 6000 kall
Þetta eru 6 metrar, sem er mjög passlegt í 20 lítra lagnir og passar flott í suðuföturnar sem margir eru að nota. Garðslanga passar beint upp á rörið, þannig að það þarf engin fittings og ekkert vesen. Tvær hosuklemmur og málið er dautt.
Til samanburðar þá eru vörukaup að selja svona eirrör á uþb 1400kr metrann.
Ég á haug af þessu (ég þurfti að kaupa 50 metra), þannig að það er ekkert mál að redda öðrum stærðum á 1000kr metrann