Hmm ég pældi reyndar ekki í því, ég var að miða við verðin sem ölvisholt voru með. Humlarnir eru til dæmis uþb 50% ódýrari ef ég man rétt, og kornsekkirnir töluvert ódýrari.
Mér sýnist 25kg af Pale Ale leggja sig á ca. 4.900kr eða
verði í evrum * gengi dagsins * 1,3 (flutningskostnaður + gjöld + álagning) * [1,07 (vsk fyrir matvæli) eða 1,255 (vsk fyrir aðrar vörur)
þ.e. 22,40 * 156 * 1,3 * 1,07 = 4.900kr.
100g af Cascade eru 4,69 * 156 * 1,3 * 1,07 = 1.017kr.
Hmm ég get ekki snert þau verð, ég væri þá að borga með korninu. Sendingarkostnaðurinn á því er svo helvíti hár - kostar næstum 2x meira en kornið sjálft. Og það er með skipi.
Þetta eru fín verð og ég mun notfæra mér þetta þegar mig vantar vörur - þetta er í öllu falli mun ódýrara en að ætla að panta sér í lögun sjálfur beint að utan (þó brouwland pöntunin sé farin frá mér þá hef ég ekki fengið neina staðfestingu á endanlegu verði og veit ekki hvenær vörurnar koma í hendurnar).
Ég vona að þetta gangi vel og þú getir haldið þessu áfram til framtíðar því það er sannarlega skortur á svona verslunum hér heima.
Svo er það auðvitað að ef þetta gengur vel þá get ég líklega farið að panta meira í hvert skipti og hugsanlega einhverja afslætti hjá flutningsaðilunum, sem myndi bjóða upp á betri verð.
hrafnkell wrote:Hmm ég get ekki snert þau verð, ég væri þá að borga með korninu. Sendingarkostnaðurinn á því er svo helvíti hár - kostar næstum 2x meira en kornið sjálft. Og það er með skipi.
Það skekkir myndina að horfa of mikið á verðið á 25kg pakkningunni. Ef við berum saman 5kg á Pale Ale og 1kg á CaraPils, þá ert þú á sama verði og Brouwland eða ódýrari. Í humlum ert þú töluvert ódýrari. Í það heila er ég ánægður með verðskrána.
Burtséð frá þessum verðsamanburði, þá segi ég fyrir mitt leiti að ég er mjög þakklátur fyrir að einhver vilji taka að sér að bæta úr hráefnisskortinum. Ég á eftir að versla við þig. Skál fyrir Hrafnkeli
Ég man að 100 g af humlum kostuðu 1500 kr þegar ÖB var að selja. Mér finnst bara frábært hvað þú hyggst leggja lítið á þetta. Ég mun örugglega skipta við þig. Sérstaklega ef þú ætlar að bjóða uppá mölun.
Ég smellti verðskránni inn á http://www.brew.is" onclick="window.open(this.href);return false; ... Svo er ég að leita mér að birgja sem getur selt mér ger.
Birginn sem ég keypti kornið og humlana af vill bara selja mér heilar pakkningar af geri, þannig að ef ég ætlaði að vera með 4-5 mismunandi gertegundir þá þyrfti ég að liggja með 6-700 pakkningar á lager. Ég er ekki alveg viss um að geta selt það mikið
Mér var að detta eitt í hug:
Í hvaða umbúðum get ég afhent kornið? Ég sé ekki fram á að eiga hrúgu af tómum sekkjum eins og ölvisholt, hvað annað dettur mönnum í hug?
hrafnkell wrote:
Mér var að detta eitt í hug:
Í hvaða umbúðum get ég afhent kornið? Ég sé ekki fram á að eiga hrúgu af tómum sekkjum eins og ölvisholt, hvað annað dettur mönnum í hug?
Er ekki best að menn eigi plastfötur sem þeir komi með eða kaupi af þér? Svo værir þú með límmiða þar sem hægt er að skrifa dagsetningu, eiganda, tegund og magn. Plastföturnar eru á góðu verði hjá þessu fyrirtæki í Mosfellsbæ.

Hmm bara svona 10l málningarfötur eða eitthvað svoleiðis?

Nokkrar stærðir. Minnsta fatan rúmar minnsta magn sem þú selur. Kannski 2L. Svo 5L, 10L (15L) og 25L (gerjunarfata). Þessar fötur eru "food-grade".
Persónulega myndi ég fremur mæta með mín eigin ílát, fremur en að borga aukalega fyrir slíkt. Ég á fötur, sekki, og ef í harðbakkann slær, svarta ruslapoka. Annars finnst mér verðskráin sanngjörn, og kann vissulega að meta þarft og gott framtak.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Það eru til glærir plastpokar í RV, sem eru svona eins og "hálfur" svartur poki. Kosta ekki mikið en eru mjög sanngjarnir í styrkleika.
Það er spurning hvort að það sé ekki nægjilegt að henda korninu í þesskonar plastpoka?? Er það slæmt? Kannski ekki best til að geyma kornið í áraraðir...
Prófaðu að tala við fyrirtæki sem heitir Umbúðir og ráðgjöf og ath með poka hjá þeim. Eins með Plastprent. Þessi fyrirtæki bjóða upp á poka undir matvæli og pokarnir eru alls ekki dýrir. Veit samt ekki hvort þeir hafi poka sem tekur 25 kg en það er ekkert verra að vera með 5x5 kg poka. 10 kg poki undir t.d rækju kostaði fyrir 4 árum um 12-16 kr að mig minnir.
Já ég skoða þetta, tala við plastprent og einhverjar þannig búllur. Aðal málið er að hafa þetta ódýrt svo ég þurfi ekki að hækka verðið útaf einhverjum plastpokum
Weyermann klúðruðu eitthvað afhendingunni á korninu þannig að það er ekki alveg víst að þetta hafi komist í skip á föstudaginn. Það myndi þýða að kornið kemur ekki fyrr en í þarnæstu viku
Ég smellti verðunum á gerinu inn á síðuna líka. Það eru reyndar um 2 vikur í að ég fái gerið, en þetta verða líklega verðin.
Kornið og humlana fæ ég vonandi í dag - Samskip eru ekki búnir að tæma gáminn, en það er allt tollafgreitt og reddí. Mér sýnist ég geta staðið við þessi verð sem ég setti inn upphaflega.