kari wrote:hrafnkell wrote:3500w eru um 32mm í þvermál og mislöng, eru ekki öll beygð á sama stað.
Væntanlega öll lengri en 20cm?
Já ég hugsa það... Gæti verið að eitthvað af þeim sé nálægt því þó. Þyrftir líklega hærra density element ef þú vilt koma svona mikilli orku fyrir í litlu plássi. Og auka þar með líkur á bruna á virtinum.
Proppe wrote:Ég stefni á grimmt brugg næstu helgi. Þar sem ég er að vinna miðviku- og fimmtudag, þá vildi ég bara vita hvort það verði hægt að nálgast vörur á föstudaginn, eða hvort ég þurfi að gera ráðstafanir fyrr í vikunni, vegna verslunarmannahelgar.
Mæli með því að koma fyrr í vikunni. Ætti samt að sleppa á föstudaginn, sérstaklega ef það væri fyrripartinn.