Sælir/Sælar
Við erum nokkrir að skoða það að opna nýtt brugghús hérlendis... ég veit, enn eitt
Erum reyndar komnir aðeins lengra en að skoða það, langt komnir með að umbreyta gömlu húsnæði til að hýsa okkur og erum að bæta við okkur meiri og meiri búnaði, hvort sem það er gamlir mjólkurtankar eða látum smíiða nýjar græjur.
En enginn okkar er official bruggmeistari þó að við erum búnir að vera í þessu í mörg ár og lesa allt sem við komumst í.
Svo er líka svo rosalega þægilegt að nálgast allar upplýsingar tengt þessu á Íslandi....
En mín spurning er þessi, verður brugghús á Íslandi að vera með löggiltan bruggmeistara eða
gætum við keyrt þetta áfram án þess?