Hæhæ,
Hef til sölu flott 50L "BIAB" kerfi með eftirfarandi búnaði:
- 50L ryðfrír pottur + falskur botn (dýru pottarnir hjá brew.is)
- 33L ryðfrír pottur með 2x fölskum botnum, sama hugsun og fyrir Braumeister (dýru pottarnir hjá brew.is)
- 5,5 kW Camco Ripple element
- Chugger pumps dæla
- Camlock hraðtengi á öllum slöngum
- Stýribox með Auber PID regli + RTD (PT-100) hitanema
- Nokkrir BIAB pokar ef menn vilja frekar nota þá í staðin fyrir 33L pottinn.
- Nokkrar notaðar gerjunartunnur
- 10m gúmmikapall frá tengli í stýribox og 2m kapall frá stýriboxi í bruggpottinn
- Reflectin einangrun á báðum pottum
Ég var orðinn þreyttur á því að meskja í BIAB poka og ákvað því að bæta við 33L potti sem situr ofan á 50L pottinum, með tveimum gataplötum þar sem ég set kornið í. Dælan þrýstir svo vökvanum upp í gegnum efri pottinn og er yfirfall í miðjum pottinum. Þetta er í raun sama princip og fyrir Braumeister græjurnar, sjá myndir. Einnig væri hægt að nota þær eins og t.d Grainfather, þ.e. að dæla ofan á efri falska botninn og láta virtinn leka í gegnum kornið og ofan í neðri pottinn..
Kosturinn við þetta setup er sá að ég get gert 40L lagnir af miðlugs sterkum bjór (BeeCave o.s.frv) í 50L potti sem er nánast vonlaust með 50L BIAB kerfi..
Ég gæti allveg hugsað mér að selja þetta í sitt hvoru lagi, þ.e. 50L pottinn með BIAB poka og öllu og svo 33L pottinn sér ef einhver vill hætta í BIAB pokum og fara yfir í "Braumeister" tæknina.
Nývirði á þessu dóti er rúmlega 170 þúsund + mikil vinna við smíði á 33L pottinum. Element og Chugger dæla nokkura mánaða.
50L biab pottur með öllu dótinu --> 90 þúsund
33L pottur með fölskum botnum + hraðtengi --> 30 þúsund
Saman selst þetta á 110 þúsund. Ástæða fyrir sölu er að ég er að stækka við mig...
Sendið mér endilega PM ef áhugi er fyrir hendi eða hringið í síma 863-6666 (Raggi)
MYNDIR:
Botninn í 33L pottinum, Bazooka screen til að tryggja að ekkert korn fari niður í neðri pott. Rörið í miðjunni notað til þess að festa falska botna og með yfirfall ofan í neðri pott
Neðri falskur botn kominn í, framlenging á röri sést einnig á myndinni (fyrir 30-40L lagnir):
Efri falskur botn + yfirfall:
Heildar setup:
Hérna er svo stutt myndband af meskingu sem ég tók um daginn:
https://www.youtube.com/watch?v=f-U8YiP ... e=youtu.be