Vel gert. Bjórinn er alltaf skemmtilegri með "andlit". Kannast líka við þennan font, Ginga>. Notaði hann líka á fyrsta miðann minn. Stal svo "halanum" og klíndi honum aftan á nauðalíkan en hreinni font, Chopin script, til að fá út Klassiker logoið sem ég hef notað síðan.
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
Flottir miðar!
Já, það er voða gaman að föndra þessa miða. Ég fíla Ginga mjög vel og það sem mér finnst svo skemmtilegt er einmitt hvað fonturinn er klessulegur
Á Kút: Bee Cave og Eiríkur Rauði
Á flösku: Vetur Konungur og English Brown (Black) Ale
Í Gerjun: Ekkert
Framundan: Enn að hugsa málið
Glæsilegt. Eins og ég minntist á á síðasta fundi langar mig að koma þeirri nýbreitni á í keppninni að auk flasknanna sem skilað er inn í sjálfa keppnina má skila inn einni flösku í "fullum klæðum", ef svo má að orði komast, sem svo verða dæmdar af dómnefnd og gestum út frá útliti og öðrum fagurlegum gildum. Það verður örugglega hörku keppni