Núna hef ég ætlað að brugga í nokkra daga en ekki komist í það vegna annara hluta.
En þegar tækifæri gefst, hef ég sest niður og fiktað í uppskriftinni alveg hægri vinstri, því ég kemst ekki í að brugga helvítis bjórinn. Það sem var orðið fínt á blaði í gær, er ekki nándar nógu gott í dag.
Eru einhverjir fleirri sem fikta svona mikið í sínum uppskriftum? Þetta fikt endar svo ekki þegar ég loksins fer að brugga, heldur geri ég oft breytingar á síðustu stundu, sem er síðan breytt í uppskriftinni eftir á. Þetta eru reyndar ekki drastískar breytingar; helst eitthvað sem kemur að lit eða ég er að reyna að fá fram einhver ákveðin einkenni malts.
Ég þarf að fara að drífa þennan bjór í gang hjá mér svo þetta endi ekki sem eitthvað allt annað en ég laggði upp með í byrjun