Sá þetta um daginn http://www.brewgeeks.com/12oz-beer-crate.html og langaði að smíða svona. Komst að því að það var erfitt að nálgast efni í þessum stærðum, endaði á að fá 21x44 mm2 í stað 1"x2" og 21x70 mm2 í stað 1"x3" í Bauhaus. Selt í 3.6 m lengjum, einn af hvorum dugir í kassann, kostaði saman 1100 kr og þeir saga fyrir þig frítt. Löngu hliðarnar þurfa að vera ca 8 mm styttri en gefið er upp en stuttu hliðarnar óbreyttar.
Byrjaði á að líma saman stuttu hliðarnar:
Boraði göt til að auðvelda skrúfun (er það orð?):
Skrúfaði botninn í. Endabitarnir voru örlítið neðar en hinir, þannig að ég endaði á að skrúfa þær í gegnum botninn eins og hinar í miðjunni til að þetta væri allt slétt:
Festi síðan hliðarbitana með skrúfum (allar skrúfur 4/35 mm). Pússaði með sandpappír og bar síðan tvær umferðir af húsgagnaolíu sem var til í bílskúrnum hjá pabba:
Komst að því að flöskurnar voru ekki mjög stöðugar og lét mig því hafa það að fara í Bauhaus að kaupa plötu til að búa til skilrúm. Endaði á að kaupa 3mm masonite plötu á 1495 kr, lét saga hana í 7x 17 cm ræmur en plötusögunin kostaði í kringum 1500 kall. Það náðist í heilan kassa úr rétt rúmlega einni ræmu. Þannig að ég á tæpa 6 ræmur ef fleiri hafa áhuga og vilja ekki kaupa heila plötu Mældi út sjálfur og sagaði úr plötunum með handsög, sem var tímafrekt en þess virði að mínu mati:
Allt smellpassaði og flöskurnar mjög stöðugar:
Svona skemmtir maður sér þegar konan fer til útlanda (enda kassinn fullur af tómum flöskum)