Gott kvöld.
Timi til kominn að kynna sig til leiks.
Ég fékk áhuga á gerjun og bjórframleiðslu eftir að hafa unnið með þremur forföllnum bjórbruggurum á haustdögum 2013.
Fyrstu þrír mánuðurnir voru nokkurnveginn þannig að maður var mállaus fluga á vegg í daglegri umræðu á vinnustaðnum, þar sem maður var svo gjörsamlega fatlaður þegar kom að bjórbruggun.
Þetta hefur, sem betur fer, breyst all hressilega.
Ég byrjaði á því að brugga í eitt skipti hjá hvorum þessara þriggja samstafsmanna. Allir voru með mismunandi uppsetningu á tækjum... allt frá því að vera með einfeldnina að leiðarljósi yfir í það að tengja HERMS kerfi við Arduino og horfa á tölur og línurit á tölvuskjá, prumpa nokkrum sinnum og dæla svo yfir í gerjunarílát.
Þetta var góð reynsla, því þarna kynntist ég mismunandi aðferðum/tækjakosti við framleiðsluna. Það merkilega var að árangurinn varð frábær í öll þrjú skiptin, óháð tækjakostinum. Við þetta varð mér ljóst að bjórbruggun fjallar meira um hantverk en tækjakost.
Hálfvitinn Ég fór samt, þrátt fyrir allt sem myndi teljast heilbrigð skynsemi, í það að smíða mér full blown HERMS með electricbrewery-ish stjórnborði, með bjöllum og ljósum. Þetta varð mér dýrkeypt, þó mest í tíma. Ég dúllaði mér í rúma 10 mánuði við það að sanka að mér öllu sem til þurfti, hugsa óendanlega mikið og prjóna svo draslið saman. Time is bjórbruggun!!! Þarna missti ég nokkra mánuði í það að smíða tæki sem ég hefði geta notað í að brugga
Það verður samt að segjast eins og er að mér finnst það jafn spennandi að smíða tækin, eins og að nota þau.
Sem stendur er ég að fara breyta setup-inu, eitthvað meira í ætt við RIMS og er að nota poka við meskjunina
"Less is more"
Að lokum:
Eitt sem ég hef gert mér grein fyrir, er það að margir hafa mjög sterkar skoðanir á framleiðsluferlinu, en.... þetta eru ekki geimvísindi og maður er ekki að fara kljúfa atómið neitt bráðlega.
Þótt hitastigi skeiki um nokkra gráðuna, og hvort maður geri hitt eða þetta í framleiðslunni, þá gildir einu að hafa gaman að þessu.
Þekkingaröflun í bjórbruggun er þroskaferli, ég er rétt byrjaður og á langt í land