Á menningarnótt mun Fágun halda sitt árlega kútapartí milli kl 14:00 og 18:00 á
Klambratúni (áður Miklatún).
Félagsmenn munu bjóða upp á það sem þeir kunna best að gera auk þess sem grillaðar verða pylsur fyrir gesti og gangandi. Allir eru velkomnir og þeir sem vilja kynna vini og fjölskyldu fyrir skemmtilegu áhugamáli ættu að nýta tækifærið.
Boðið verður upp á gos fyrir yngri kynslóðina og bílstjóra. Ekki verður rukkað fyrir pylsurnar en tekið verður á mót frjálsum framlögum. Fágun skaffar drykkjar- og matarílát og kol á grillið.
Hvar: Klambratúni við leikvöllinn / grillsvæðið
Hvenær: 14:00 - 18:00 (fer eftir magni á bjór og veðri)
Þeir sem vilja koma með bjórkút í gleðina endilega kvittið hér undir svo við vitum við hverju er að búast.
Kútar:
æpíei -
Greip Grísette og
humlaðan amerískan hveitibjór
viddi - Saison
helgibelgi - 1stk (ekki 100%, en næst vonandi)
Ásta (hún/hann) - 1-2 kútar
Arnar -
Hrafnkell -