Hæ!
Ég er game! Ég skal splæsa einum belgískum Dubbel í púkkið sem ég bjó til í síðasta mánuði. Ætti að verða epískur um þetta leyti. Vinnuheitið er Dubbel Trubbel.
Ég vil vera memm hugsanlega biére de garde, allveg sama um daginn. En ef að eftirspurnin verður mikil þá væri hægt að byrja dagatalið á 29.Nóv því þá er fyrsti í aðventu þá væri þetta reyndar aðventudagatal .. En var bara á að benda á þetta ef að það verður mikil eftirspurn, (þá væri ég til í 30.Nóv)
Sælir
ég er búinn að hugsa um þetta annað veifið síðan ég sá fyrst fjallað um þetta fyrir 2-3 árum. Frábært framtak og ég vill vera með. Veit að vísu ekkki með hvaða bjór.... Hugsanlega brettaða bjórinn minn en ég er ekki viss...
í fyrra agreiddi ég jólabjórana á þennan hátt, þ.e. bjó mér til dagatal. Það var gaman en þetta verður mikið skemmtilegra. Spái líflegum umræðum hérna á spjallinu á hverju kvöldi í des.
Endilega gerið ráð fyrir 31 flösku. Stærð skiptir svosem ekki máli, bruggari ræður því sjálfur, en ætli 330 ml verði ekki vinsælastar. Mjög mikilvægt að merka tappana með þinni dagsetningu, svo þetta fari ekki allt í rugl þegar við hittumst til að deila út dagatalinu.
Svo mæli ég með að menn setji inn uppskrift hér á spjallborðið, þar sem umræða um bjórinn getur farið fram
gm- wrote:Já, þetta var ansi flott. Ekki lengi að fyllast!

Það liggur við að það væri þægilegast að hafa þetta bara í google docs skjali (excel sheet eða álíka).. Þar gætu menn sett inn allar upplýsingar og auðvelt að finna upplýsingar um hvern og einn bjór (flipar 1-31). Búa bara til standard template sen menn fylla svo útí? ... bara hugmynd
Í gerjun: Dubbel
Á flöskum:
Á kút: Saison, Sænski IPA, Hveitibock
Á næstunni: Westvleteren 12
Ég mæli líka sterklega með að fólk reyni að hanna og prenta út flöskumiða. Það er bæði skemmtilegt og gaman að sjá eins ólíka stíla í miðagerðinni eins og bjórgerðinni.
Á Kút: Bee Cave og Eiríkur Rauði
Á flösku: Vetur Konungur og English Brown (Black) Ale
Í Gerjun: Ekkert
Framundan: Enn að hugsa málið
gm- wrote:Já, þetta var ansi flott. Ekki lengi að fyllast!
Endilega gerið ráð fyrir 31 flösku. Stærð skiptir svosem ekki máli, bruggari ræður því sjálfur, en ætli 330 ml verði ekki vinsælastar. Mjög mikilvægt að merka tappana með þinni dagsetningu, svo þetta fari ekki allt í rugl þegar við hittumst til að deila út dagatalinu.
Svo mæli ég með að menn setji inn uppskrift hér á spjallborðið, þar sem umræða um bjórinn getur farið fram
Það liggur við að það væri þægilegast að hafa þetta bara í google docs skjali (excel sheet eða álíka).. Þar gætu menn sett inn allar upplýsingar og auðvelt að finna upplýsingar um hvern og einn bjór (flipar 1-31). Búa bara til standard template sen menn fylla svo útí? ... bara hugmynd
Já, endilega. Smellum í google docs sheet þegar nær dregur.
Sigurjón wrote:Ég mæli líka sterklega með að fólk reyni að hanna og prenta út flöskumiða. Það er bæði skemmtilegt og gaman að sjá eins ólíka stíla í miðagerðinni eins og bjórgerðinni.
Já, það væri skemmtilegt, en ef fólk hefur ekki tíma í slíkt þá er það alveg skyljanlegt. Hvet samt flesta í að útbúa miða fyrir þetta.
Jökull wrote:Er enn laust í lokin? Skal taka 30. ef ennþá laust. Skal gera amber.
Var næstum því búinn að gleyma þessu og datt í hug að vekja þráðinn aftur, enda bara rúmir þrír mánuðir í 1. des Ég ætla að gera atlögu að Great Lakes Christmas Ale klón, flokkast væntanlega sem 21B. Christmas/Winter Speciality Spiced Beer.