Nú er svo komið að ég er að fara flytja á klakann í haust. Ég mun að sjálfsögðu taka brugggræjurnar með, en var að velta fyrir mér hvaða hluti/hráefni væri erfitt að nálgast á klakanum? Eða er Hrafnkell með allt sem þarf?
Hlakka til að verða virkari í félagsstarfinu næsta vetur,
gm-
gm- wrote:Glæsilegt, tek líka við ábendingum um hluti sem væri sniðugt að taka með sér sökum okurtolla og slíks. Má víst taka nýja hluti uppað 140 þús. með mér.
Ath nýjir hlutir eru allir hlutir sem eru 2ja ára gamlir eða yngri.. Eða var það amk þegar ég flutti frá Danmörku á sínum tíma. Gætir verið beðinn um kvittanir fyrir öllum andskotanum. Ég lenti svosem ekki í neinu, en vert að hafa í huga