Ekki var talið ráðlegt að hafa fundinn 6. því þá er annar í páskum og fólk almennt í matarboðum og þessháttar.
20:00 - Mæting
20:30 - Dagskrá hefst. Tilkynningar og stutt spjall um hvað er á döfinni
20:45 - Fræðsluerindi um vatn og vatnsprófíla (Hrafnkell brew.is)
22:30 - Hefðbundum fundi lýkur
Við minnum á að félagsmenn í Fágun fá 15% afslátt á barnum á Skúla.
Fundargerð - Mánaðarfundur 13.apríl 2015
- Fundur var færður yfir á Skúla Craft Bar með stuttum fyrirvara, en það kom ekki í veg fyrir frábæra mætingu (17 manns).
- Mættir - og drykkir sem komið var með:
Plammi
æpíei - 2x brettaður pale ale
gummikalli
helgibelgi - 2x dubbel
hrefnakaritas
ernir
ástaósk
hrafnkell
karlp - pale ale gerjaðan með geri úr ónefndum frönskum bjór
dabby
brynjareddi
Hörður Björnsson
bjarkith
bjorninn
aðalbjörg kara - 2x Bee Cave
gunnar már - 2x Tri Centennial
Jonniah
- Notað var tækifærið, fyrst svona margir voru mættir, að taka kynningarhring.
- Formaðurinn kynnti Bruggkeppni Fágunar 2015. Allar nánari upplýsingar er hægt að finna hér
- Spjallað var aðeins um Peche 'n Brett - Logsdon Farmhouse Ales sem var fáanlegur á landinu í stuttan tíma og þótti mikill eðal drykkur.
- Í framhaldið af því var talað um að ekki er sama hvar maður pantar ef maður vill sérpanta í Vínbúðunum. Var Snædísi í Skútuvoginum hrósað sérstaklega. Hægt er að panta hjá henni í gegnum skutuvogur@vinbud.is
Einhver benti á að Vínbúðin vilji fá sendar pantanir á innkaup@vinbud.is - Hrafnkell sá um fræðsluerindi um vatn. Nálgast má fræðsluefnið í 2 bloggfærslum hans á brew.is Vatnsviðbætur og Meira um vatnsviðbætur