Veistu, ég hef verið að lenda í nákvæmlega þessu sama en ég held að ég sé nokkurn vegin búinn að komast að því hvað er að.
Í fyrsta lagi þá mæli ég með því að fylla kæliboxið að minnsta kosti upp til hálfs af eins heitu vatni og þú nærð úr krananum þínum. Ég geri það í baðkarinu mínu, þ.e. hækka í botn (c.a. 65°C) og fylli til hálfs og læt standa í c.a. klukkutíma eða á meðan ég geri afganginn af dótinu klárt. Ég hef líka hreinlega gert þetta kvöldið áður og þá var boxið vel heitt í gegn þegar ég byrjaði um morguninn.
Næst er að hlusta voða lítið á beersmith til að byrja með, þú mátt reikna með 1L per Kg af korni þannig að ef þú ætlar að enda með 24L í suðu og ert með 5kg af korni þá áttu að vera með 29L í heildina, þannig er það í mínu boxi að minnsta kosti. Þessu vatnsmagni er svo gott að skipta bara í jafna hluta og ef þú þarft að bæta við heitara vatni þá dregur þú það frá skolmagninu. Ég nota oft bara 12-13L af vatni og hef þá meira skolvatn.
Svo er það lykilatriðið: ef þú ert að meskja á 66°C eða neðar, þá þarftu 90 mínútur í meskingu. Ég komst að þessu bara fyrir skemmstu þegar ég horfði á þetta myndband sem útskýrir rosalega vel:
https://youtu.be/1PSvCRtVdZU
Ég hef náð betri nýtni eftir að ég fór að gera þetta svona. Þú getur þegar þú ert búinn að meskja, og ert að fara að skola, kveikt undir pottinum og byrjað að fá upp suðu til að flýta ferlinu ef þú hefur áhyggjur af því að þetta taki of langan tíma svona.