Ég fagna því að íslenskt brugghús hafi sent frá sér brettaðan bjór. Þegar ég fékk fyrst að smakka hann þá var ekki augljóst að hann væri brettaður. Nú hefur það aðeins komið betur fram og á eftir að verða mun meira eftir nokkra mánuði. Ég myndi reynað kaupa eins marga og þú færð og hefur efni á. Þessi verður klárlega klassík og vonandi upphaf af aukinni brett- og súrvitund landans.
Já ég var nokkuð ánægður með hann - Bestur af páskabjórunum klárlega. Ég hef reyndar ekki smakkað páskabjórana frá Gæðing og Steðja, en hef ekki miklar áhyggjur af því að þeir velti borg úr sessi með besta páskabjórinn
Ég er langt kominn með einn af þeim þrem sem ég náði í
Verð að segja að fyrir mína parta þá er hann er orðinn þægilega brettaður, en ég er líka algjörlega á fyrstu skrefum mínum hvað Brett varðar. Sumir mundu eflaust segja að hann væri ekki kominn af stað ennþá.
En ég á tvo til viðbótar.
Þeir verða geymdir og vonadi munu þeir fylgja brett-þroska mínum vel.
Skál.
Ég varð fyrir vonbrigðum. Finnst hann of sætur og fönkið ekki á þannig stað að hann sé að gera neitt fyrir mig. Ég á nokkur stykki og ætla að geyma þetta dágóða stund. Vonandi þurrkar brettinn þetta aðeins.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór