Page 1 of 1
byrjandi í bjórgerð
Posted: 5. Sep 2009 14:23
by aromat
Ég keypti byrjendapakka hjá Ámunni. Ég fylgdi leiðbeiningunum og hélt það yrði ekkert botnfall í flöskunum en það er samt eins og það sé. Reyndar er bjórinn núna í eftirgerjun þannig að ég er að spá hvort þetta botnfall hverfi með tímanum. Af hverju er bjór sem maður kaupir í ríkinu ekki með botnfalli?
Re: byrjandi í bjórgerð
Posted: 5. Sep 2009 14:31
by sigurdur
Botnfallið hverfur ekki með tímanum.
Botnfallið er bara ger sem að bjó til bubblurnar í bjórinn þinn.
Það er ekki allur bjór í ríkinu sem að er án botnfalls.
Botnfallið kemur til vegna koltvísýringunar í flöskum í staðinn fyrir að það sé gert með öðrum aðferðum.
Það er ekkert botnfall í flestum bjór í ríkinu því að meirihlutinn af bjórnum sem að þú kaupir í ríkinu er geldur (gerilsneyddur) og síaður bjór.
Re: byrjandi í bjórgerð
Posted: 5. Sep 2009 15:20
by aromat
Gæti ég þá látið bjórinn fara í gegnum síu áður en hann fer í flöskurnar til að losna við meirihlutann af botnfallinu.
Re: byrjandi í bjórgerð
Posted: 5. Sep 2009 17:01
by Andri
Botnfallið er ekkert slæmur hlutur að mínu mati, maður lærir bara að hella úr flöskunni án þess að fá botnfallið með í glasið.
Best er bara að geyma bjórinn til lengri tíma í gerjunarfötunni, ekki einhverjar 2 vikur eins og er sagt í mörgum leiðbeiningum.
Re: byrjandi í bjórgerð
Posted: 5. Sep 2009 19:05
by Hjalti
aromat wrote:Gæti ég þá látið bjórinn fara í gegnum síu áður en hann fer í flöskurnar til að losna við meirihlutann af botnfallinu.
Ekki nema þú viljir goslausan bjór...
Gerið vinnur úr sykrinum sem þú setur í flöskurnar, það sem kemur úr því er botnfall og gos eða CO2
Botnfall = Gott
Það eru antioxidantar og vítamín í botnfallinu og eins og Andri segir þá lærir maður að hella úr flöskuni án þess að fá botnfall ef maður vill það ekki.
Ég hafði áhyggjur af þessu fyrst en þetta lærist eftir fyrsta bjórinn að mínu mati og mér fynnst þetta ekkert atriði lengur eginlega

Re: byrjandi í bjórgerð
Posted: 5. Sep 2009 21:05
by Oli
aromat wrote:Gæti ég þá látið bjórinn fara í gegnum síu áður en hann fer í flöskurnar til að losna við meirihlutann af botnfallinu.
Ef þú ert með lokað síukerfi, þeas síar án þess að fá súrefni í bjórinn, og ert svo með corny kúta tengda við co2 tank til að fá kolsýringu er það ekkert mál.....en þá ertu kominn í allt annan pakka en byrjendasett úr Ámunni. Sættu þig við smá botnfall til að byrja með. Ef þú hefur frekari áhuga á bjórgerð þá skaltu lesa það sem þú getur á vefnum m.a. gagnlegar vefsíður
http://fagun.is/viewtopic.php?f=2&t=18" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: byrjandi í bjórgerð
Posted: 6. Sep 2009 10:34
by Eyvindur
Eins og bent hefur verið á er gerið meinhollt. Það er líka fullt af B-vítamíni, sem vinnur gegn timburmönnum. Og gerið framleiðir kolsýruna, sem margir telja hálfgert skilyrði. En eitt af því besta er að gerið heldur bjórnum ferskum lengur í flöskunni.
Semsagt, enn og aftur, botnfallið er vinur þinn.