Kvöldið,
Ég ásamt nokkrum ætlum að kaupa heilt bretti af nýjum 33cl bjórflöskum (Brúnar að sjálfsögðu). Eftir að vera búinn að þrífa mörg hundruð flöskur í gegnum tíðina og beita allskonar aðferðum við að ná miðum af, þá ákváðum við að tala við innflutningsaðila sem flytur flöskur inn, m.a fyrir eitt brugghús hérna á Íslandi.
Flöskurnar koma í 300stk pakkningum (plastaðar), sótthreinsaðar og tilbúnar til átöppunar. Á einu bretti eru 1.800stk og er nú þegar búið að panta 900stk af þeim þannig að eftir standa 900stk (3x300) sem við vildum helst vera búnir að selja áður en við pöntum. Ekki er mögulegt að kaupa hluta úr pakkningu, en fólk gæti komið sér saman um að deila slíkri.
Ég vildi athuga áhugan hjá fólki hér, stk af flöskunni kostar 40kr, eða 25kr þegar búið er að fara með þær í endurvinnsluna, samanborið við 140kr/stk í Ámunni!
Plöskurnar ættu að koma um miðjan Desember.
Póstið endilega á þennan þráð eða sendið mér PM
Kveðja, Raggi