Var einmitt að henda í minn í gærkvöldi og mig minnir að hann hafi verið einhvern veginn svona:
3 kg. White Sorghum Syrup (2 dósir)
60 min - 14 gr. Simcoe
15 min - 20 gr. Simcoe
15 min - 300 gr. Púðursykur
10 min - Whirfloc
0 min - 30 gr. Simcoe
US-05
Basically bara mjög svipuð uppskrift og Vienna-Simcoe SMaSH'inn sem er orðinn nokkurs konar húsbjór hjá mér.
Planið er að þurrhumla síðan með 19 gr. af Cascade (af því að ég á ekki meira) og sjá hvað gerist.
Það er svona nett rúgbrauðslykt af sýrópinu þannig að lyktarlega var virtin með humlum bara mjög svipuð og á venjulegum bruggdegi.
Lét virtina renna í gegnum counterflowerinn og aftur ofan í pottinn þangað til ég var kominn niður í c.a. 50 °C sem var óvart, aðstoðarbruggarinn var látinn standa of lengi og kæla á meðan ég þurfti að snattast eitthvað.
Lét þetta svo bara renna eftir kúnstarinnar reglum í gerjunartunnuna og tók sýni til OG mælingar.
Endaði að sjálfsögðu með allt of lítið í tunnunni og bætti örugglega við 3 lítrum af vatni.
OG af 17 lítrunum var því 1.062. Hef ekki hugmynd hvað OG var eftir 3 lítra viðbót
Það sem mér fannst skrítnast við þetta allt var að þegar þetta var búið að vera í einhvern tíma í gerjunartunnunni var þetta ennþá hellings skýjað/gruggugt.
Maður á von á að prótein/humla jukkið sökkvi töluvert fljótt til botns og sé alveg komið niður fyrir miðja tunnu eftir 30-40 mín.
Það var ekki í þessu tilfelli.
Gleymdi að sjálfsögðu að kíkja á barnið í morgun en vonandi endar þetta ekki sem skýjuð Sorghum súpa með humlum eftir 2 vikur.
Ef þetta virkar þá verður þetta bara endurtekið.
Ef ekki þá er spurning um að fara út í endurbætur og brown rice extract viðbætur og eitthvað fancy smansy sem fæst örugglega ekki á Íslandi
For Science!!