Félagsskírteinið er tilbúið og var afhent félagsmönnum sem mættu á mánaðarfund júlí mánaðar. Gegn framvísun skírteinisins fæst 25% afsláttur af drykkjum á Hlemmi Square fyrir utan drykki á Happy Hour verði. Við munum athuga með frekari afslætti og tilboð. Fylgist með hér.
Hafið samband við okkur á stjorn hjá fagun.is ef þið viljið nálgast ykkar skírteini. Annars mætum við með þau á kútapartýiið á Menningarnótt og næsta mánaðarfund sem verður 11. ágúst.
Það eru nokkrir búnir að borga félagsgjald í gegnum heimabanka sem létu ekki fylgja með neitt notendanafn á spjallinu. Ef þið vitið til þess að þið séuð búin að borga en eruð ekki enn orðin appelsínugul hér á spjallinu endilega látið mig þá vita, í gegnum skilaboð, eða jafnvel tölvupóst ef þið viljið skjót svör: astaosk@gmail.com
Að gerjast: Humla hveitibjór, Reyköl
Að þroskast: Imperial red ale, Reyktur Stout
Á flöskum: Lakkrís og súkkulaði porter, Hafrastout með íslensku ristuðu byggi, Libertine Clone, Coffee Imperial Stout
Framundan: Hveitibjór, IIPA