Eftir aðalfund.Sindri wrote:Hvenar byrjar nýtt félagsár ? Hyggst gerast meðlimur þá.
5. Grein
Stjórn félagsins skal skipuð 3 félagsmönnum þ.e. formanni, gjaldkera og ritara.
Stjórnarmenn skulu kosnir til eins árs í senn á hverjum aðalfundi. Formaður boðar
stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir.
Félagsgjald er ákveðið á aðalfundi ár hvert.
Hver félagsmaður má aðeins gegna sama embætti í 4 ár samfleytt.
Daglega umsjón félagsins annast formaður félagssins.
Firmaritun félagsins er í höndum formanns félagsins.
Í:Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok maímánaðar ár hvert. Hann er lögmætur ef
löglega er til hans boðað.
Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok nóvembermánaðar ár hvert. Hann er lögmætur ef
löglega er til hans boðað.
Í:Starfstímabil félagsins er frá aðalfundi til aðalfundar, þ.e.a.s maí til og með apríl.
Með þessum hætti dreifast viðburðirnir jafnar yfir árið, og ný stjórn hefur ekki störf að sumri, þegar lítið er um að vera og fólk gjarnan í fríum o.þ.h.Starfstímabil félagsins er almanaksárið.
6. Grein
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins.
Mánaðarlegir félagsfundir skulu boðaðir af stjórn félagsins, fyrsta mánudag hvers
mánaðar. Stjórn hefur leifi til að færa fundi til annars mánudags mánaðar þegar
þurfa þykir
Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok nóvembermánaðar ár hvert. Hann er lögmætur ef
löglega er til hans boðað.
Félagsfundir eru opnir öllum nema stjórn félagsins ákvarði annað.
Í gerðabók félagsins skal skrifa stutta skýrslu um það sem gerist á félagsfundum
og stjórnarfundum, einkum allar fundrasamþykktir.
Þar sem ekki er kveðið á um annað gilda lög um félög og samtök sem ekki eru í
atvinnurekstri.
7. Grein
Aðalfund skal boða með auglýsingu á http://www.fagun.is" onclick="window.open(this.href);return false; ásamt tölvupósti með minnst
tveggja vikna fyrirvara, talið frá og með útsendingardegi fundarboðs.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið.
Á aðalfundi félagsins skulu tekin fyrir þessi mál:
1. Ársskýrsla stjórnar.
2. Endurskoðaðir reikningar fyrir hið liðna reikningsár, með
athugasemdum endurskoðenda, eru lagðir fram til úrskurðar.
3. Lagabreytingar
4. Stjórnarkosning
5. Kjör skoðunarmanns reikninga
6. Önnur mál
Hverjum aðalfundi stýrir kjörinn fundarstjóri. Hann rannsakar í fundarbyrjun hvort
löglega hafi verið til fundarins boða og lýsir því síðan, hvort svo sé.
Innan félagsins skal starfa nefnd, skipuð þremur félagsmönnum, sem sér um að vinna að bættri lagaumgjörð er varðar gerjaða drykki. Nefndin skal starfa sjálfstætt, en funda með stjórn að minnsta kosti tvisvar á hverju félagsári. Nefndarmenn skulu kosnir á aðalfundi annað hvert ár, til tveggja ára í senn.
Ástæðan fyrir þessari tillögu er í fyrsta lagi að ég held að það sé nauðsynlegt að hafa fólk utan stjórnar sem heldur utan um keppnina, auðvitað í mikilli samvinnu við stjórnina, en líka að í þessu sem öðru tel ég nauðsynlegt að byggja upp góðan reynslubanka, en þess vegna legg ég til að nefndin sitji í tvö ár.Árshátíð og bjórgerðarkeppni Fágunar skal fara fram í apríl ár hvert. Nefnd sem sér um skipulagningu hennar, í samvinnu við stjórn félagsins, skal skipuð þremur félagsmönnum. Nefndarmenn skulu kosnir á aðalfundi annað hvert ár, til tveggja ára í senn.
Nei, ekki nema þegar breytingartillögur eru sameinaðar á fundinum.æpíei wrote:Er ekki hægt að samþykkja breytingartillögur með breytingum?
Komdu þá með breytingartillögu og skýrðu hvernig hún eigi að vera.æpíei wrote:Ég er sammála Ástu. Ég held að það fari betur að bæta við 5. grein málsgrein um að félagið geti skipað nefndir til að annast tilgreind verkefni, t.d. laganefnd, keppnisnefnd og útgáfunefnd, sem sæi um vefsíðu og útgáfu á fræðsluefni, sem dæmi.
Breytt tillaga varðandi félagsár væri þá þannig að félagsárið væri frá aðalfundi til aðalfundar. Mér finnst í raun óþarft að taka fram mánuðina, þar sem það segir sig sjálft. Þá þarf líka bara að breyta einni lagagrein ef þessu verður breytt aftur. En hér er sumsé breytt 7. grein:Stjórn getur skipað nefndir til lengri eða skemmri tíma, til að annast tilgreind verkefni, s.s. samskipti við löggjafann, umsjón bjórgerðarkeppni, útgáfu fræðsluefnis o.s.frv.
7. Grein
Aðalfund skal boða með auglýsingu á http://www.fagun.is" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false; ásamt tölvupósti með minnst
tveggja vikna fyrirvara, talið frá og með útsendingardegi fundarboðs.
Starfstímabil félagsins er frá aðalfundi til aðalfundar.
Á aðalfundi félagsins skulu tekin fyrir þessi mál:
1. Ársskýrsla stjórnar.
2. Endurskoðaðir reikningar fyrir hið liðna reikningsár, með
athugasemdum endurskoðenda, eru lagðir fram til úrskurðar.
3. Lagabreytingar
4. Stjórnarkosning
5. Kjör skoðunarmanns reikninga
6. Önnur mál
Hverjum aðalfundi stýrir kjörinn fundarstjóri. Hann rannsakar í fundarbyrjun hvort
löglega hafi verið til fundarins boða og lýsir því síðan, hvort svo sé.
Ákvæði um embætti skoðunarmanns reikninga fellur niður, enda er það tilgreint í 7. grein að skoðunarmaður reikninga skuli kosinn á aðalfundi.Stjórn ber að skipa eftirfarandi nefndir innan mánaðar frá aðalfundi er starfa skulu allt starfsárið: Laganefnd, sem ber að vinna að bættum lögum um gerjun á léttum áfengum drykkjum í samstarfi við löggjafann, Keppnisnefnd, sem ber að vinna að skipulagningu bruggkeppna í nafni Fágunar, og Útgáfunefnd, sem ber ábyrgð á vefsíðu félagsins og öðru útgáfuefni. Hver nefnd skal skipuð 2-3 félagsmönnum Fágunar.
Stjórn félagsins skal skipuð 3 félagsmönnum þ.e. formanni, gjaldkera og ritara. Stjórnarmenn skulu kosnir til eins árs í senn á hverjum aðalfundi. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir.
Félagsgjald er ákveðið á aðalfundi ár hvert.
Hver félagsmaður má aðeins gegna sama embætti í 2 ár samfleytt. Daglega umsjón félagsins annast formaður félagssins.
Firmaritun félagsins er í höndum formanns félagsins.
Stjórn ber að skipa eftirfarandi nefndir innan mánaðar frá aðalfundi er starfa skulu allt starfsárið: Laganefnd, sem ber að vinna að bættum lögum um gerjun á léttum áfengum drykkjum í samstarfi við löggjafann, Keppnisnefnd, sem ber að vinna að skipulagningu bruggkeppna í nafni Fágunar, og Útgáfunefnd, sem ber ábyrgð á vefsíðu félagsins og öðru útgáfuefni. Hver nefnd skal skipuð 2-3 félagsmönnum Fágunar.
Stjórn er heimilt að skipa í nefndir og embætti á vegum félagsins og setja þeim starfsreglur.