Ef þú getur skrúfað bjölluna sem er á cappernum þínum af þá getur þú að öllum líkindum skipt.
Ég á t.d. þennan: http://www.northernbrewer.com/shop/red- ... apper.html" onclick="window.open(this.href);return false; og það er hægt á honum.
Og já, þú verður þá að kaupa þér nýja bjöllu.
Veit ekki hvort Hrafnkell er með þetta en hérna er eitthvað til að starta leitinni: http://www.northernbrewer.com/shop/29mm ... agata.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég er með þessa rauðu. Það komu tvær bjöllur með minni töng fyrir bæði 29 mm og venjulega. Einfalt mál að skipta, þarft bara að passa að bjallan hafi skrúfast alveg rétt á. Hef sett á nokkrar 29 mm án vandræða.
Ég keypti þessa. Þetta er sama töng og hjá Northern Brewer í póstinum hér að ofan. Það koma 2 bjöllur með þeirri frá Maltbazaren og svo er hægt að kaupa þær stakar líka.