Hvað finnst ykkur um páskabjórana?
Við félagarnir smökkuðum í gær og var Páska bock frá Vífilfell bestur.
Er að melta Jesú. Er ekkert að missa mig yfir honum. Þari var slappur. Annað óspennqndi og páska gull slakastur.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
Smakkaði jesús um daginn og var ekki hrifinn af honum.. ekki góður ekki vondur. Fékk mér Páska bock í gær og finnst mér hann klárlega bestur. Smakkaði líka Páska kalda og hef eiginlega verið fyrir vonbrigðum með síðustu bjóra frá kalda og borg.
Á flösku: Sindness (Guinness clone), Hvítvín & Rauðvín
Á kút: #Yolo v3.5 Imperial stout með eik og koníaki
Í gerjun: Ekkert.....
To do: Alltof mikið.....
Ég er nokkurnveginn sammála ykkur með Jesú. Hvorki vondur né góður einhvernveginn. Dó frekar fljótt í glasinu hjá mér og það er eitthvað í eftirbragðinu, líklega eikin, sem fer aðeins í taugarnar á mér.
Páska Bock finnst mér mjög góður og sótti mér meira af honum áðan.
*************
Kveðja
Jóhann N
Education is important, but beer is importanter...
Ég er ekki búinn að smakka Jesús. Gleymdi að kaupa mér hann. Ég hef oft verið spenntari fyrir árstíðarbjórunum frá borg, sennilega þess vegna sem ég gleymdi að kaupa hann.
Svo er það stóra vandamálið að þegar maður á alltaf nóg af frábærum heimagerðum bjór, þá fer maður voðalega sjaldan í ríkið og missir af hinu og þessu. Einhver annar sem á við þetta erfiða vandamál að stríða?
hrafnkell wrote:Ég er ekki búinn að smakka Jesús. Gleymdi að kaupa mér hann. Ég hef oft verið spenntari fyrir árstíðarbjórunum frá borg, sennilega þess vegna sem ég gleymdi að kaupa hann.
Svo er það stóra vandamálið að þegar maður á alltaf nóg af frábærum heimagerðum bjór, þá fer maður voðalega sjaldan í ríkið og missir af hinu og þessu. Einhver annar sem á við þetta erfiða vandamál að stríða?
Já, gleymdi að kaupa hann núna í nokkra daga. Nóg af bruggi hér á bæ