Berin eru frosin og ég vildi ná réttum hita á blöndunni fyrir gerið. Setti aðeins of heitt þannig að ég þurfti að kæla niður aftur.Plammi wrote:Áhugavert. Þetta er einmitt í áttina að því sem mig langar að prófa í 5L gerjunarflöskunni minni.
Þegar þú setur heitt vatn í, hversu heitt þarf það að vera? Er verið að sótthreynsa og/eða ná einhverju meira úr berjunum?
Ég setti berin strax, í þetta skiptið. Einmitt upp á að fá einhverja næringu og svona. Margir vilja gefa miðinum nokkrar vikur áður en berin fara í, til þess að gerið freti ekki megninu af berjagamaninu út um loftlásinn. Ég lét þetta duga núna. Curt Stock gerði þetta svona í brewingtv þættinum sem ég linkaði á blogginu þannig að þetta getur varla verið al galið. Hann notar reyndar ennþá meira af ávöxtum en ég notaði.Eyvindur wrote:Spennandi. Mig hefur lengi langað að prófa að gera ávaxtamjöð einhvers konar.
Seturðu berin strax, en ekki eftir frumgerjun, til að nýta næringarefnin úr þeim?
Hlakka til að fylgjast með þessu!
Já endilega henda í mjöð, það er bara gaman ef fleiri fara í þetta og skiptast á smakki. Ég er einmitt mjög hrifinn af cysernum mínum. Ég hef engan samanburð, en finnst hann hafa heppnast mjög vel.helgibelgi wrote:Virkilega ánægður með þetta!
Mjöðurinn sem ég fékk að smakka frá þér var hreinn unaður og er mjög ánægður að þú sért að prófa þig áfram í þessari grein.
Vonandi mun ég geta veitt þér smá samkeppni í mjaðargerðinni í nánari framtíð! (þurfum að koma fyrir mjaðar-flokki í bruggkeppnina!)
Valid punktar. Ég er svolítið spenntur að sjá muninn á 71b og wyeast gerinu sem ég notaði í cyserinn. Ég er mjög ánægður með cyserinn, verður athyglisvert að sjá hvernig melomel þróast eftir nokkra mánuði.æpíei wrote:Ég var að horfa á nýjasta þátt Chop and Brew í gær. Þar var náungi sem sérhæfir sig í mjöð að ræða hvernig hann fer að.....
Gerið á erfitt með hunangið og áfengismagnið sem er í flestum mjöðum. Súrefni á fyrstu stigum gerjunarinnar hjálpar gerlinum að fjölga sér og gefa meira "clean" gerjun. Súrefni og næring í byrjun og í nokkrum þrepum eftir að gerjun er byrjuð er talin lykillinn að því að gera góðan mjöð.Snordahl wrote:Mjög flott Hrafnkell og gaman að fylgjast með þessu.
Eftir að hafa smakkað mjög góðan bláberjamjöð hjá vini að þá ætla ég að fara í tilraunastarfsemi um helgina, ætla skella í léttan Cider og Mjöð.
Hver er pælingin með að bæta súrefni í "mustin" eftir að gerjun er hafin?
Snordahl wrote:Ég skil. Nú á ég ekki svona græju en gæti ég ekki þá opnað tunnuna, hleypt súrefni inn, lokað og hrist fötuna eða er það alveg galið?
Um gernæringu: Það er algengt að nota uþb 1 teskeið af gernæringu per gallon (3.8 lítra) af miði. Venjulega er helmingnum bætt í strax við blöndun, og rest svo dreift í daglega næstu 2-4 daga og hrært upp í miðinum samhliða því. Það er talið gera gæfumuninn fram yfir að til dæmis setja alla næringuna strax. Það er ekki mælt með því að bæta súrefni í mjöðinn eftir að gerið er búið með 50% af sykrinum..