Nokkrar flöskupælingar

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
Post Reply
Beatsuka
Kraftagerill
Posts: 51
Joined: 21. Jan 2014 16:55

Nokkrar flöskupælingar

Post by Beatsuka »

Sælt veri fólkið!

Ég er búinn að vera að skoða þræðina hérna í allt kvöld og hef fengið nokkrar vangaveltur upp í kollinn á mér varðandi flöskur..
Mig langar að sjá hvort maður fái einhver imput frá gerlum spjallsins varðandi þessar vangaveltur þar sem að ég er þessa stundina að vinna hörðum höndum að því að sanka að mér flöskum fyrir tilkomandi heimabrugg!

Ég afsaka mig ef að ég er að spyrja að of vitlausum spurningum eða ef það hefur verið fjallað sérstaklega um einstaka dæmi í öðrum umræðum, ég hef bara ekki séð það sérstaklega.

1. Hvaða bjórflöskur mælið þið sérstaklega með til þess að nota í BIAB átöppun og afhverju?

2. ég hef séð að margir kjósa að nota dökk gler. er einhver sérstök ástæða fyrir því? Er ekki auðveldara að sjá hvort bjór sé orðinn tær á glærum flöskum?

3. Hefur fólk verið að lenda í vandræðum með Víking Gylltan flöskurnar varðandi að setja á þær tappa? sýnist vera svo lítið bil á milli kantana á þeim flöskum.. (sjá mynd)

4. Hvar er best að kaupa miða til að merkja sínar eigin flöskur með sínum útprentunum fyrir viss tilfelli?

afsaka spurningaflóðið en ég er nýr í þessu og á eftir að koma mér almennilega af stað. en maður verður nú að byrja á því að redda sér almennilegum flöskum áður en útí bruggið er farið og er alveg eins gott að vera ekki að versla slatta af bjór sem er í ónothæfum flöskum ;)

Mynd:
Hér má sjá Víking flösku (til hægri) við hlið venjulegrar glærrar flösku og sést greinileag munurinn köntunum fyrir tappa.
Image

:beer:
Skál fyrir því!
Hjalti Á
Beatsuka Brew

Í Gerjun - Ekkert!
Á flöskum - Beats Xmas 2015 - Saison DuBle
To do - Kaupa kælispíral!! -
gm-
Gáfnagerill
Posts: 317
Joined: 21. Jan 2013 17:22
Location: Hafnafjörður

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by gm- »

1. Hvaða bjórflöskur mælið þið sérstaklega með til þess að nota í BIAB átöppun og afhverju?

Mér fannst best að nota 500 ml brúnar flöskur, en núna notast ég aðallega við 500 ml grænar grolsch flöskur með swing top töppum svo ég þurfi ekki að nota capper.

2. ég hef séð að margir kjósa að nota dökk gler. er einhver sérstök ástæða fyrir því? Er ekki auðveldara að sjá hvort bjór sé orðinn tær á glærum flöskum?

Olíurnar í humlum isomerast í sólarljósi og brotna niður og niðurstaðan er hin alræmda skunkun, sem er ekki gott fyrir bjórinn.

3. Hefur fólk verið að lenda í vandræðum með Víking Gylltan flöskurnar varðandi að setja á þær tappa? sýnist vera svo lítið bil á milli kantana á þeim flöskum.. (sjá mynd)

Get ekki hjálpað þér með þessa, þar sem ég bý ekki á Íslandi.

4. Hvar er best að kaupa miða til að merkja sínar eigin flöskur með sínum útprentunum fyrir viss tilfelli?

Sama hér, en mér fannst best að nota bara venjulegan prent pappír og festa þá á flöskurnar með mjólk
astaosk
Kraftagerill
Posts: 118
Joined: 29. Dec 2009 19:47

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by astaosk »

Ég er alveg búin að gefast upp á því að nota viking flöskur. Minn "lokari" ræður amk ekki við að loka þeim vel (rauður, keyptur í Ámunni fyrir mörgum árum)
Að gerjast: Humla hveitibjór, Reyköl
Að þroskast: Imperial red ale, Reyktur Stout
Á flöskum: Lakkrís og súkkulaði porter, Hafrastout með íslensku ristuðu byggi, Libertine Clone, Coffee Imperial Stout
Framundan: Hveitibjór, IIPA
drekatemjari
Kraftagerill
Posts: 71
Joined: 18. Dec 2012 02:37

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by drekatemjari »

Ekki hafa áhyggjur af því að spyrja spurninga, ég var allt of ragur við það þegar ég byrjaði og hefði getað sleppt mörgum vitleysunum hefði ég bara látið vaða og fengið ráðleggingar.


1. Ég nota ALLAR flöskur sem ég kemst yfir og taka þessa venjulegu tappa. Flest allar flöskur eru nothæfar en það tekur nokkra lagni að læra á sumar þeirra eins og t.d. viking flöskurnar. Sumir vilja eiga eins flöskur undir bjórinn sinn en ég er með minn á littlum stubbaflöskum, hoegaarden, budweiser, egils, Leffe og nánast öllum þeim flöskum sem ég eða vinir mínir skilja eftir heima hjá mér.

2. Brúna glerið verndar best fyrir ljósskemmdum síðan græna en ljósa glerið veitir litla sem enga vernd. Eins og gm- segir er humlaður bjór sérstaklega viðkvæmur fyrir ljósskemmdum en það á þó við um allan bjór.
Ég er ekkert að pæla í hvaða gler er í flöskunum þar sem ég geymi allan minn bjór inni í geymslu eða ísskáp þangað til ég drekk hann og þvi lítil hætta á ljósskemmdum.

3. Þær eru svolítið tricky en ég næ að setja á þær með græjunum frá Hrafnkeli á Brew.is

4. Ef þú kemst í laser prentara geturðu notað mjólkur aðferðina sem er mjög easy. Maka smá mjólk aftan á pappírinn og hann límist við flöskuna en það er erfitt að nota mjólk með bleksprautuðum pappír án þess að blekið smyrjist út um allt.

Það besta sem ég hef gert í flöskumálum frá því ég byrjaði að brugga er að í hvert sinn sem ég eða einhver annar opnar sér flöskubjór á mínu heimili tek ég flöskuna og skola hana vandlega og læt til hliðar til þurrkunar.
Nannig eru flöskurnar hreinar þegar ég pakka þeim niður í kassa og engin mygla myndast í botninum og því óþarfi að þrífa þær með hreinsiefnum áður en ég nota þær.
Ég einfaldlega skola úr þeim með volgu vatni og sótthreinsa með joðófór áður en ég set bjór á þær.
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by bergrisi »

Um að gera að spyrja. Ég hef grætt helling á því hérna inni.

1. Ég byrjaði á að kaupa mér kassa af Grolsch ásamt því að safna öllum flöskum sem til féllu. Er með algjört ógeð á Grolsch bjórnum. Var lítið hrifinn af honum fyrir en þetta gekk alveg frá mínum áhuga á þeim bjór. Í dag nota ég bara brúnar 33 cl flöskur þar sem ég geri mikið af dökkum og þungum bjórum og finnst því 33 cl hæfilegt magn. Ég er unungis með flöskur sem eru með "góðum" háls sem skilur brugg eftir. Líkt og Kalda flöskurnar en nota ekki Leffe flöskur þar sem gruggið rennum frekar úr þeim.

2. Búið að svara

3. Prufaði að nota flöskur frá Viking en er alveg hættur því. Finnst leiðinlegt að nota svona flöskur. Fékk einusinni helling af Tuborg flöskum sem voru líka með svona tappa og losaði mig við þær.

4. Miðarnir eru spennandi til að byrja með en ég fór fljótlega í að merkja mína bjóra með litlum límmiðum á tappana. Sjá umræðu hér: http://fagun.is/viewtopic.php?f=24&t=17 ... ice#p15605, en tek það fram að það er gaman að vera með flottan miða og sumir eru að gera virkilega flotta miða eins og Classic. http://fagun.is/viewtopic.php?f=8&t=276 ... B0i#p22987

Gangi þér vel í flöskusöfnunni.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
User avatar
Plammi
Gáfnagerill
Posts: 269
Joined: 24. Mar 2012 14:09

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by Plammi »

Sýnist nú vera búið a ðsvara öllu hérna, en hér eru smá reynslu-punktar sem mig langar að bæta við:

Merkingar: Þú átt aldrey eftir að nenna að gera miða fyrir allar flöskur. Best er að gefa bjórnum númer eða nafn og tússa á tappann (hjá mér HD = Hádurtur, HD2 = Hádurtur v.2). Persónulega er ég hrifnari af 2ja bókstafa dæminu því þá þarf ég ekki að fletta upp númerum ef ég gleymi.
Fyrir þær flöskur sem fá miða þá virkar vel að prenta á venjulegan pappír og festa á með smá mjólk. Einnig hef ég heyrt að smá U-hu lím haldi miðanum vel og fer auðveldlega af við þvott.
Varastu að nota flöskur sem þér finnst vera aumingjalegar, t.d. þunnar og léttar. Hef lent í því að brjóta einfaldlega toppinn af flöskunni við átöppun.

Flöskuval: Ég er hægt og rólega að reyna að fara eingöngu í 500ml flöskur, það munar soldið að tappa á 40stk vs. 60stk fyrir hverja lögn...
Í gerjun:
Á flöskum/Kút: Very Hoppy Saison
Næst á dagskrá: Zombie, Hádurtur I revisited
Hans Klaufi á FB
Beatsuka
Kraftagerill
Posts: 51
Joined: 21. Jan 2014 16:55

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by Beatsuka »

Flott er takk kærlega fyrir þetta :)

Mjög gott að vita með dökka / græna glerið. ég verlsaði mér einmitt 2 kippur af Víking gylltum sem er í brúnum flöskum og í næstu ferð ákvað ég að skoða Stella flöskurnar nánar þar sem ´mér þykir hálsin á þeim einmitt geta aðstoðað mig við að minka skýjun/grugg í bjórnum þegar ég helli hann er það skarpur.

Hafði einmitt hugsað mér að merkja bjóra svona á tappana en ef að sérstakt brugg verður notað t.d. í sérstökum tilefnum þá útbúa miða á það. Er ekki að nenna að fara að merkja miða á hverja flösku í hvert skipti :)

Hugsa að ég muni bara kaupa Stella héðan af nema einhver geti komið með betri hugmynd af flöskum sem henta betur? enda tiltörulega ódýr og alveg drykkjanlegur þótt ég kjósi nú víkinginn frekar persónulega :)

Þarf væntanlega að sanka að mér minst 60 flöskum, en ef ég þekki mig rétt þá mun það duga skamt þannig að markið er sett á minimum 120 flöskur áður en fyrsta brugg er búið :)... spurning hvernig það fer með mann samt heh. sem betur fer þá mun fyrsta brugg ekki byrja fyrr en í mars og ég á eftir að gera upp heila íbúð í febrúar þannig að það er fín leið til að sötra smá :)

Takk aftur fyrir góð svör!

:skal:
Skál fyrir því!
Hjalti Á
Beatsuka Brew

Í Gerjun - Ekkert!
Á flöskum - Beats Xmas 2015 - Saison DuBle
To do - Kaupa kælispíral!! -
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by hrafnkell »

Ég myndi halda mér frá grænum (stella) flöskum ef þú ert að velja bjór með það í huga að ætla að setja eigin veigar á þær..
Funkalizer
Kraftagerill
Posts: 90
Joined: 18. Jun 2013 23:02

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by Funkalizer »

Er stúturinn á Stella flöskunum ekki líka frekar leiðinlegur fyrir þennan typical capper?
Beatsuka
Kraftagerill
Posts: 51
Joined: 21. Jan 2014 16:55

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by Beatsuka »

Ju gæti verið.. sa það eftir að hafa opnað mer i kvold að stùturinn er nànast eins og á víking gull..

Ekkert vandamàl. Þà er bara að prófa næsta bjór á listanum. S.s. einhvern sem tekinn var fram her að ofan :)
Þykir nu ekki leiinlegt að profa bjóra :)

Er stella slæmt útaf einhverju öðru en tappaveseninu eða er það líka liturinn?

Edit- las betur commentið frá hrafnkeli. Focusa þa bara a dokkt brunt gler :)

:beer:
Skál fyrir því!
Hjalti Á
Beatsuka Brew

Í Gerjun - Ekkert!
Á flöskum - Beats Xmas 2015 - Saison DuBle
To do - Kaupa kælispíral!! -
User avatar
gosi
Gáfnagerill
Posts: 254
Joined: 9. Oct 2009 20:32

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by gosi »

Eru Gæðingaflöskurnar ekki fínar. Hef allavegana náð miðanum af þeim 100% og ekkert lím.
Þær eru brúnar og tappanlegar. Pínu pervertismi í mér en mér finnst þær líka svolítið heillandi flöskur.

Búnaðurinn: 33L stálpottur, 3500W, kælispírall, humlakönguló, BIAB poki, Stýribox og 12v dæla.

Bruggað áður: 2xBeeCave, 2xBrúðkaupsöl, 2xCentennial Blonde, Hvítur Sloppur, DrSmurto's Golden Ale, 2xVienna Simcoe SMASH, 20L StarterKölsch,Neals Kölsch
Í gerjun:
Á flöskum:
Á kút:
User avatar
Plammi
Gáfnagerill
Posts: 269
Joined: 24. Mar 2012 14:09

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by Plammi »

Gæðingur flöskurnar eru frábærar. Það er mjög þæginlegt að ná þeim af og flöskurnar eru góðar í alla staði.
Stella eru leiðinlegar. Þá helst vegna þess að þegar maður klórhreynsar flöskurnar þá skilja miðarnir eftir einskonar glimmer sem sest utan á allt og festist þar.
Sjálfur safnaði ég soldið af 500ml Thule og Budvar flöskum, þær hafa reynst vel (miðaþrif á Budvar er ekkert rosalega skemmtilegt en bjórinn er góður).
Í gerjun:
Á flöskum/Kút: Very Hoppy Saison
Næst á dagskrá: Zombie, Hádurtur I revisited
Hans Klaufi á FB
Beatsuka
Kraftagerill
Posts: 51
Joined: 21. Jan 2014 16:55

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by Beatsuka »

Verð að vera sammála eftir að hafa skoðað Gæðinginn að flöskurnar eru heillandi / flottar.

Verst að við erum að tala um nánast 2x hærra verð á þeim sem telur ef maður er aðalega að horfa á að sanka að sér flöskum. en ég verð reyndar að játa mig sekann um að hafa ekki enþá smakkað gæðing þannig að bjórinn gæti hreinilega verið þess virði að eyða 2x meira :)

:beer:
Skál fyrir því!
Hjalti Á
Beatsuka Brew

Í Gerjun - Ekkert!
Á flöskum - Beats Xmas 2015 - Saison DuBle
To do - Kaupa kælispíral!! -
astaosk
Kraftagerill
Posts: 118
Joined: 29. Dec 2009 19:47

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by astaosk »

Ætli Egils gull og Bríó séu ekki ódýrustu flöskurnar sem eru vel nýtanlegar, þó innihaldið mætti vera betra - þú bætir bara úr því. Samt ekki alveg eins þægilegt að fjarlægja miðana og af yndislegu Gæðings flöskunum.
Að gerjast: Humla hveitibjór, Reyköl
Að þroskast: Imperial red ale, Reyktur Stout
Á flöskum: Lakkrís og súkkulaði porter, Hafrastout með íslensku ristuðu byggi, Libertine Clone, Coffee Imperial Stout
Framundan: Hveitibjór, IIPA
User avatar
gosi
Gáfnagerill
Posts: 254
Joined: 9. Oct 2009 20:32

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by gosi »

Miðað við ríkið núna kostar Gæðingur Lager 363 eða Gæðingur Pale Ale 363 en Bríó 324. EInnig kostar ódýrasta brúna flaskan með réttum hálsi 299, annars vegar frá
Krombacher Pils og hins vegar frá Budweis. Svo þarna er ekki alveg 2x meiri kostnaður.

Búnaðurinn: 33L stálpottur, 3500W, kælispírall, humlakönguló, BIAB poki, Stýribox og 12v dæla.

Bruggað áður: 2xBeeCave, 2xBrúðkaupsöl, 2xCentennial Blonde, Hvítur Sloppur, DrSmurto's Golden Ale, 2xVienna Simcoe SMASH, 20L StarterKölsch,Neals Kölsch
Í gerjun:
Á flöskum:
Á kút:
Beatsuka
Kraftagerill
Posts: 51
Joined: 21. Jan 2014 16:55

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by Beatsuka »

gosi wrote:Miðað við ríkið núna kostar Gæðingur Lager 363 eða Gæðingur Pale Ale 363 en Bríó 324. EInnig kostar ódýrasta brúna flaskan með réttum hálsi 299, annars vegar frá
Krombacher Pils og hins vegar frá Budweis. Svo þarna er ekki alveg 2x meiri kostnaður.

Neinei. enda er ég líka bara í algjöru rugli hérna og afsaka þetta. var ekki að lesa rétt í verðin svona nývaknaður.

Verðin eru alls ekki slæm á gæðing miðað við annan bjór. Ég mun bókað versla mér Pale Ale frá Gæðing á eftir. En ég verð að játa að ég sé hvergi Gæðingur Lager. Eini bjórinn sem ég sé á síðu ÁTVR frá Gæðing sem kostar 363 kr. er Pale Ale.

Takk fyrir að leiðrétta mig Gosi!

:skal:
Skál fyrir því!
Hjalti Á
Beatsuka Brew

Í Gerjun - Ekkert!
Á flöskum - Beats Xmas 2015 - Saison DuBle
To do - Kaupa kælispíral!! -
User avatar
gosi
Gáfnagerill
Posts: 254
Joined: 9. Oct 2009 20:32

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by gosi »

Já ég sé það á síðunni að hann er ekki til, allavegana samkvæmt henni.

Búnaðurinn: 33L stálpottur, 3500W, kælispírall, humlakönguló, BIAB poki, Stýribox og 12v dæla.

Bruggað áður: 2xBeeCave, 2xBrúðkaupsöl, 2xCentennial Blonde, Hvítur Sloppur, DrSmurto's Golden Ale, 2xVienna Simcoe SMASH, 20L StarterKölsch,Neals Kölsch
Í gerjun:
Á flöskum:
Á kút:
Beatsuka
Kraftagerill
Posts: 51
Joined: 21. Jan 2014 16:55

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by Beatsuka »

Konan fór í leiðangur í tilefni dagsins og verslaði fyrir mig 5 tegundir til smakks.

Image

Gæðingur stout, Gæðingur Hveitibjór(x6), Gæðingur Þorrabjór, Gæðingur Tumi Humall og svo einn þýskann Erdinger.

verð að segja að þessar flöskur eru virkilega skemtilegar í laginu og er ég ekki frá því að ég muni halda mig við þær :)
Verst að Pale Ale var ekki til hérna á Akureyri :/ kemur vonandi fljótlega því mig langar að prófa hann líka! (og lager ef hann kemur aftur..?)

Langar mig að þakka ykkur fyrir að benda mér á Gæðinginn. alveg fínasti bjór í góðum flöskum :)
Get nú ekki alveg sagt það sama um Erdinger-inn. fanst hann lítið spennandi. ekkert vondur en bara aðeins of hlutlaus eitthvað. :)

:beer:
Skál fyrir því!
Hjalti Á
Beatsuka Brew

Í Gerjun - Ekkert!
Á flöskum - Beats Xmas 2015 - Saison DuBle
To do - Kaupa kælispíral!! -
User avatar
gosi
Gáfnagerill
Posts: 254
Joined: 9. Oct 2009 20:32

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by gosi »

Ég held þú getur pantað bjór í ríkinu ef hann fæst þar. Þeas ef hann fæst bara í Kringlunni þá gætir þú pantað hannn sérstaklega til Akureyrar.

Búnaðurinn: 33L stálpottur, 3500W, kælispírall, humlakönguló, BIAB poki, Stýribox og 12v dæla.

Bruggað áður: 2xBeeCave, 2xBrúðkaupsöl, 2xCentennial Blonde, Hvítur Sloppur, DrSmurto's Golden Ale, 2xVienna Simcoe SMASH, 20L StarterKölsch,Neals Kölsch
Í gerjun:
Á flöskum:
Á kút:
drekatemjari
Kraftagerill
Posts: 71
Joined: 18. Dec 2012 02:37

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by drekatemjari »

Ég talaði við eiganda Gæðings á microbar um daginn og hann sagði mér að hann hafi aldrei verið almennilega ánægður með lagerinn þeirra enda kerfið þeirra ekki sérstaklega gott fyrir lagerframleiðslu. Hann sagði að þeir væru að koma sér upp betri lagerbruggbúnaði og ætluðu að koma með betri lagerbjór þegar búnaðurinn væri kominn í gagnið.
Það er kannski ástæðan fyrir þvi að Gæðingur lager er ekki fáanlegur í ÁTVR.
Beatsuka
Kraftagerill
Posts: 51
Joined: 21. Jan 2014 16:55

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by Beatsuka »

gosi wrote:Ég held þú getur pantað bjór í ríkinu ef hann fæst þar. Þeas ef hann fæst bara í Kringlunni þá gætir þú pantað hannn sérstaklega til Akureyrar.
Já það er vert að skoða. en ég held að það eigi þá aðalega við bjór sem að fæst venjulega ekki t.d. á Akureyri heldur bara í t.d. Heiðrúnu. en ef að bjór er einfaldlega bara búinn og er venjulega til á Akureyri þá væntanlega tekur það því ekki að sérpanta hann.
En ég mun bókað tékka á því næst þegar ég fer niðureftir :)
drekatemjari wrote:Ég talaði við eiganda Gæðings á microbar um daginn og hann sagði mér að hann hafi aldrei verið almennilega ánægður með lagerinn þeirra enda kerfið þeirra ekki sérstaklega gott fyrir lagerframleiðslu. Hann sagði að þeir væru að koma sér upp betri lagerbruggbúnaði og ætluðu að koma með betri lagerbjór þegar búnaðurinn væri kominn í gagnið.
Það er kannski ástæðan fyrir þvi að Gæðingur lager er ekki fáanlegur í ÁTVR.
Ahh það útskýrir allt :) verður gaman að sjá hvernig það gengur upp hjá þeim!

:skal:
Skál fyrir því!
Hjalti Á
Beatsuka Brew

Í Gerjun - Ekkert!
Á flöskum - Beats Xmas 2015 - Saison DuBle
To do - Kaupa kælispíral!! -
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by bergrisi »

Ég bý í Keflavík og panta oft bjór. Getur gert þetta á heimasíðunni eða talað við þá beint. Skiptir engu hvort bjórinn sé í sölu hjá viðkomandi búð eða ekki. Þetta bíður þín bara allt í kassa eftir einn eða tvo daga.
Mjög þægilegt.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
Beatsuka
Kraftagerill
Posts: 51
Joined: 21. Jan 2014 16:55

Re: Nokkrar flöskupælingar

Post by Beatsuka »

bergrisi wrote:Ég bý í Keflavík og panta oft bjór. Getur gert þetta á heimasíðunni eða talað við þá beint. Skiptir engu hvort bjórinn sé í sölu hjá viðkomandi búð eða ekki. Þetta bíður þín bara allt í kassa eftir einn eða tvo daga.
Mjög þægilegt.
snilld. takk fyrir þetta! geri það þá næst ekki spurning :)
:skal:
Skál fyrir því!
Hjalti Á
Beatsuka Brew

Í Gerjun - Ekkert!
Á flöskum - Beats Xmas 2015 - Saison DuBle
To do - Kaupa kælispíral!! -
Post Reply