Sjálfsagt
það er reyndar líka úr kitti, en hef bara góða reynslu af því.
Ég leysti upp 5Kg af sykri út í 23L af vatni og setti þurrkaða ávexti út í blönduna sem að fylgdu með. Ég virkjaði svo gerið í smá glerkrukku og volgu vatni og bætti því svo út í. Eftir sirka 2 vikur var farið að hægjast verulega á gerjuninni (átti að miða við 1-2 mínútur á milli loftbóla í loftlásnum) smakkaði svo á víninu og það smakkaðist þurrt svo að ég stöðvaði gerjun. Fleytti víninu yfir í annað ílát og bætti út í það stabiliser og setti gerjunarílátið inná baðherbergi hjá mér og slökkti á ofninum og opnaði gluggann til að kæla herbergið niður. Hristi svo kútinn reglulega til að losa allt gas úr víninu. Næsta dag setti ég felliefni í kútinn og setti hann upp á eldhúsbekkinn hjá mér. Lét hann standa í 2 sólarhringa og fleytti því svo yfir í annan dúnk og bætti við jarðarberjaconsentrati. Er núna að leyfa því að eldast í 1-2 vikur. Hugsa að ég setji það á flöskur um mánaðarmótin.
Ég bjó ekki svo vel að vera með sykurflotvog svo að ég tók engar mælingar...
En ég drakk samt eitthvað af því og eftir eitt (stórt) vínglas fann ég á mér, sem er ekki nákvæm mælieining, en þetta verður allavegana nógu gott til að drekka
Lokaafurð. Smakkaðist vel og á vonandi eftir að batna