Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Setti í einn "öðruvísi" í gærkvöldi. Pale Ale með helling af blóðbergi við flameout. Splæsti einnig í 1056 í staðin fyrir að nota US-05, veit ekki hvort það sé peningana virði... Verður spennandi að sjá hvernig þessi kemur út
Í gerjun: Dubbel
Á flöskum:
Á kút: Saison, Sænski IPA, Hveitibock
Á næstunni: Westvleteren 12
Spennandi tilraun, hef einmitt smakkað slatta af bjórum undanfarið með Heather flowers (einhversskonar skoskt beitilyng), mjög misjafnir, en í sumum kemur þetta vel út, í öðrum minnir bragðið á sápu.