Nú viljum við í stjórninni fá ykkar álit varðandi Bjórgerðarkeppni Fágunar 2014. Skipulag keppninnar verður með svipuðu sniði og síðast. Flokkarnir eru þrír: 1) Litli flokkurinn (minna en 1.0xx Original Gravity) 2) Stóri flokkurinn (hærra en 1.0xx Original Gravity) og 3) Sérflokkurinn.
Við viljum fá ykkar álit á Sérflokknum. Síðast var valinn ákveðinn stíll, IPA, og skipti þá Original Gravity ekki máli svo lengi sem bjórinn var innan stílmarka.Hvaða bjórstíl viljið þið sjá/keppa í í vor?
Ef þið sjáið ekki þann bjórstíl sem þið viljið í könnuninni hér að ofan látið þá vita í kommenti og við bætum honum við. Athugið að könnunin núllstillist í hvert sinn sem breytingar eru gerðar á henni. Því verðið þið að fylgjast með og kjósa aftur!
Við munum reyna að negla niður bjórstíl sem fyrst svo þið getið hafist handa við undirbúning. Ef það verður afgerandi sigur hjá einum sérstökum stíl verður hann valinn (ef það þykir yfir höfuð raunsætt að fólk hafi tíma til að brugga hann) annars munum við líklega halda aðra könnun milli vinsælustu stílanna eingöngu.
Gott að hafa í huga: Keppnin verður að öllum líkindum haldin í Apríl 2014 líkt og undanfarin ár. Hafið það í huga þegar þið veljið þann bjórstíl sem þið viljið sjá, því mikilvægt er að eiga rúman tíma til umráða við undirbúning.
Eyvindur wrote:Sýnist porter/stout ætla að hafa afgerandi sigur. Mér líst stórvel á það.
Mjög sammála! Er sjálfur með porter á huganum allan daginn þessa dagana. Hlakka til að brugga keppnisbjórinn.
En núna eru bara 23 búnir að kjósa. Fullgildir meðlimir Fágunar eru nú amk 40 (síðasta talning) auk þeirra 3 sem eru í stjórn. Amk helmingur þeirra á þá eftir að kjósa. Reyndar er kosningin opin öllum meðlimum spjallsins svo að þetta liggur þannig séð alls ekki fyrir. Þetta gæti breyst eitthvað...
Er ekki ráð að fara að ákveða þetta strax! Það getur varla neitt breytt þessu úr þessu. Síðasti opnunardagur ársins hjá Hrafnkeli er á morgun. Það veitir ekki að öllum þeim tíma sem eftir er fram að keppni til að galdra fram góðum stout eða porter.