Hitaelement

Hér má ræða allt er viðkemur græjum til gerjunar. Segðu okkur frá skemmtilegri heimasmíði (DIY) eða áhugaverðum tækjum sem þú rakst á eða fékkst þér.
Post Reply
User avatar
Gunnar Ingi
Villigerill
Posts: 21
Joined: 18. Nov 2011 09:05

Hitaelement

Post by Gunnar Ingi »

Sælir..

Ég er í vandræðum með 60L suðupott sem er smíðaður að mestu eftir þessum leiðbeiningum.
Semsagt 60L plasttunna frá Saltkaupum og 3x hitaelement, tekin úr hraðsuðukötlum.

Gallinn við elementin úr kötlunum er sá að þau hætta að hita þegar þau ná ákveðnu hitastigi og þau sem ég er með í þessum potti halda ekki suðu nema í svona korter og hrökkva svo ekki í gang aftur fyrr en hitinn á virtinum er kominn í c.a. 70°C

Ég ætla því að fjárfesta í betra elementi í pottinn og er með nokkrar vangaveltur sem mig langaði að bera undir ykkur.
Er 3500W element (eins og það sem Hrafnkell selur) nóg í svona pott?
Er sniðugra að fara í kringlótt element eins og þau sem fást í Rafhitun?
Hversu nauðsynlegt er að vera með PID stýringu á svona elementum?

Kv,
Gunnar
rdavidsson
Gáfnagerill
Posts: 262
Joined: 25. Jan 2012 10:31

Re: Hitaelement

Post by rdavidsson »

Hitavörnin er örugglega ennþá á þeim (sem er notuð til að slökkva á elementunum í venjulegum hitakatli), það eina sem á að vera á elementunum eru pólarnir, annað áttu að rífa í burtu

Ég ætla því að fjárfesta í betra elementi í pottinn og er með nokkrar vangaveltur sem mig langaði að bera undir ykkur.
Er 3500W element (eins og það sem Hrafnkell selur) nóg í svona pott?
Það fer eftir því hvað þú ert að gera stórar lagnir og hversu þolimóður þú ert... :) Ég er sjálfur með 5,5kW og er oftast að gera 25L batch, ég myndi ekkki nenna að vera með minna element eftir að hafa verið með þetta.. Ég er með PID regli og dælu (það er möst fyrir þetta element)
Er sniðugra að fara í kringlótt element eins og þau sem fást í Rafhitun?
Hversu nauðsynlegt er að vera með PID stýringu á svona elementum?
Ef þú ert með hringrásardælu þá er nauðsynlegt að vera með PID ef þú ætlar að halda hitanum stöðugum í meskingu

Kv,
Gunnar
Í gerjun: Dubbel
Á flöskum:
Á kút: Saison, Sænski IPA, Hveitibock
Á næstunni: Westvleteren 12
User avatar
Gunnar Ingi
Villigerill
Posts: 21
Joined: 18. Nov 2011 09:05

Re: Hitaelement

Post by Gunnar Ingi »

rdavidsson wrote: Hitavörnin er örugglega ennþá á þeim (sem er notuð til að slökkva á elementunum í venjulegum hitakatli), það eina sem á að vera á elementunum eru pólarnir, annað áttu að rífa í burtu

Það fer eftir því hvað þú ert að gera stórar lagnir og hversu þolimóður þú ert... :) Ég er sjálfur með 5,5kW og er oftast að gera 25L batch, ég myndi ekkki nenna að vera með minna element eftir að hafa verið með þetta.. Ég er með PID regli og dælu (það er möst fyrir þetta element)

Ef þú ert með hringrásardælu þá er nauðsynlegt að vera með PID ef þú ætlar að halda hitanum stöðugum í meskingu
Það getur vel verið að ég hafi gleymt að taka hitasvörnina af. Takk fyrir þá ábendingu.. :)

En hvernig er það með 5500W elementið.. þarf ekki alveg 32A tengil til að keyra það?
rdavidsson
Gáfnagerill
Posts: 262
Joined: 25. Jan 2012 10:31

Re: Hitaelement

Post by rdavidsson »

25A duga, ég tengi það allavega í 25A án vandræða (sama öryggi og fyrir eldavélina hjá mér).
Í gerjun: Dubbel
Á flöskum:
Á kút: Saison, Sænski IPA, Hveitibock
Á næstunni: Westvleteren 12
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Hitaelement

Post by Eyvindur »

Já, ég er líka með 25A. Hefur ekkert hikstað.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Hitaelement

Post by hrafnkell »

5500w elementið er tæp 24A. 25A öryggi er því alveg nóg

5500w nást aðeins við 240v, en á 220-230v þá er það aðeins færri wött.
aggi
Villigerill
Posts: 48
Joined: 16. May 2012 01:35
Location: Árbær city

Re: Hitaelement

Post by aggi »

hver ætli tímamunurinn sé á 3500w og 5500w miðað við 25L lagnir er það eitthvað svo rosalegt 15mín kannski ?
Í gerjun Litli rauður R.I.P.A. :-)

Á flöskum
Hafra porter
Bee Cave ljósöl (APA)
Tri-centennial IPA

Handan við hornið Bee cave með smá twist og eitthver i.p.a.
landnamsmadur
Villigerill
Posts: 20
Joined: 18. Mar 2013 14:13
Location: Reykjavík

Re: Hitaelement

Post by landnamsmadur »

Varðandi strauminn þá mældi ég núna síðast 21,5 A með Clamp Amp mæli (frá boxinu mínu að elementi).

Varðandi stærðina á elementinu þá er ég nýbúinn að skipta úr 3500W og yfir í 5500W og er mjög ánægður.
Stærra elementið styttir rosalega tímann að hita upp vatnið, hvort sem það er kalt frá krana og upp í mash, svo upp í mash-out og loks suðu. Ég var æstur í að stytta bruggdaginn og þetta gerir allan biðtíma "þolanlegri".

Hinsvegar er ekki hlaupið að því að tengja þetta. 3500W er hins hægt að tengja mjög þægilega og hafa næstum hvar sem er.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Hitaelement

Post by hrafnkell »

Það sem landnámsmaðurinn sagði. Útreiknað (Ohms) ætti 5500w elementið að taka um 23A á 230v. Þá þarf maður hlussu tengil og kló og fleira skemmtilegt.

Ég veit ekki með tímamuninn, en ef eitthvað tekur 20mín á 3500w þá tekur það tæpar 13mín á 5500w (ef við reiknum með sömu töpum). Með því að einangra pottinn er hægt að flýta mikið fyrir.
User avatar
arnier
Villigerill
Posts: 12
Joined: 14. Apr 2013 01:34

Re: Hitaelement

Post by arnier »

http://www.phpdoc.info/brew/boilcalc.html

Þetta gefur ágætis vísbendingu um suðutíma m.v. ákveðið afl.
Post Reply