Mér finnst "nýr póstur" iconið ekki alveg nógu áberandi í nýja lookinu.
Finnst það einhvern veginn týnast í litakóðum nafna pósthöfunda, sérstaklega ef þeir eru með rautt eða appelsínugult í nöfnunum sínum.
oki ég ætla að prófa lagfæra liti og annað til og sjá hvernig það kemur út. Gefum þessu 1-2 vikur í prófun og ef fólk verður ekki ánægt þá skipti ég aftur í gamla lúúkið
Á flösku: Sindness (Guinness clone), Hvítvín & Rauðvín
Á kút: #Yolo v3.5 Imperial stout með eik og koníaki
Í gerjun: Ekkert.....
To do: Alltof mikið.....
Ég er sammála þessu með litina, það var betra að lesa gamla lookið sem var grátt í stað hvíts, þetta er auðvellt að laga og hægt að prufa sig aðeins áfram.
Hinsvegar sé ég að nýjir póstar eru litaðir bláir og það er snilld, skemmtileg framför/viðbót við að merkja ólesna þræði appelslínugula.
Ég held að það sé betra að stilla litina af í þessu en að skipta yfir í gamla.
Dabby wrote:
Hinsvegar sé ég að nýjir póstar eru litaðir bláir og það er snilld, skemmtileg framför/viðbót við að merkja ólesna þræði appelslínugula.
Ég elska samt að sjá appelsínugula litinn, það er eins og að eiga eftir að opna glugga í jóladagatalinu! Á samt örugglega eftir að venjast nýjum lit svo sem

Kanski illa orðað hjá mér, þetta appelsínugula er enn eins og það var en þegar maður opnar þráðinn eru ólesin svör með bláum bakgrunni sem er snilld. Bara verið að bæta við þá snilld sem appelsínugula merkingin er...
Það eru nokkrir góðir fídusar hér, eins og View new posts, og að sjá ný innlegg í þráð í öðrum bakgrunnslit. Þarf kannski aðeins að fínstilla litasamsetninguna.
Hvað með ný persónuleg skilaboð? Mun koma áberandi merki í stikuna ef ég fæ slíkt?
æpíei wrote:Það eru nokkrir góðir fídusar hér, eins og View new posts, og að sjá ný innlegg í þráð í öðrum bakgrunnslit. Þarf kannski aðeins að fínstilla litasamsetninguna.
Hvað með ný persónuleg skilaboð? Mun koma áberandi merki í stikuna ef ég fæ slíkt?
Þannig þarf ég aldrei að leita að nýja stöffinu. Maður fær bara alla nýja pósta síðan í seinustu heimsókn. Þannig sér maður líka pósta úr minni undirspjöllum sem maður myndi kannski annars missa af.
Já, það eina sem truflar mig umfram svona gamalmennamótþróa gegn breytingum er eiginlega stærðin. Jú, og litirnir pínu. En annars er ég bara spenntur að sjá lokaútgáfuna!
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Góður þessi First unread post takki efst í hverjum þræði.
Finn ekki Thumbs up hnapp á póstum. Gamla síðan var með einhverjar prósentutölur hversu margir ýttu á thumbs up. Betra bara að hafa fjölda sem ýta á hnappinn.
Var að skoða síðuna í gegnum Samsung Galaxy 3 með firefox og efsta appelsínuguli barinn þjappast saman þegar maður zoomar og maður getur ekki lesið textann né séð efstu línuna það sem stendur "Board index < Almenn umræða < .....".