Ég hef soldið gaman af því að skoða Kickstarter aðalega til að sjá komandi tækni. Vitaskuld skoðar maður alltaf eitthvað sem tengist bjórgerðinni. Það eru margir sem eru að reyna að auðvelda bruggunarferlið og þetta fannst mér sniðugt. Ekki tilbúnar uppskriftir eins og maður sér svo víða.
Það sem ég hef gaman af er að margir eru að reyna að finna lausnir á þessu skemmtilega sporti sem við erum í.
Stærðin myndi henta svona sólóbruggara eins og mér. 5 gallon. Það er reyndar mjög athyglisvert svar við spurningu hjá þeim um suðu. Telja góða suðu ekki vera nauðsynlega.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
Ég verð að taka undir með Hrafnkeli. Svo óttast ég þessa fyrrum Microsoft menn sem standa á bak við þetta djásn. Ekki myndi ég vilja upplifa BSOD í miðju bruggferli!
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.