Lagði í Rye-Saison í gær:
4,2 kg Pilsner (um 70%)
1,5 kg Rúgmalt (um 25%)
100 gr Dark Brown Muscovado sykur (um ?%)
60 mín: 40 gr Celeia 4%
30 mín: 20 gr Celeia 4%
10 mín: 2 gr Svartur Pipar
Wyeast 3711 French Saison
Original Gravity = 1.060 (miðað við ca 75% nýtni)
IBU: um 25
Þetta brugg gekk eins og í sögu. Hitti rúmlega pre-boil gravity og endaði með 80% nýtni. Bætti því við smá vatni til að ná gravity niður í 1.060, endaði með um 23 lítra.
Meskiplan var:
60 mín með 3x5,7 = 17,1 lítrar af vatni við 65°C. Endaði þó aðeins of hátt og bætti því við um 0,5 lítrum af köldu vatni. Því um 17,6 lítrar á móti 5,7 kg af korni = 3,1 L/Kg ca.
Mashout við 75°C í 10 mín, svo var pokinn tekinn upp úr og "dunk sparge"-aður með 11,5 lítrum af 70°C heitu vatni. Endaði með um 25 lítra pre-boil. (Kornið tekur ca 0,75 L/Kg af minni reynslu).
Mun henda inn myndum af honum í glasi þegar hann er tilbúinn.
Hvað segja menn með gerjunarhita á þessum? Hann er núna búinn að vera fyrstu 24 tímana við tæpar 22°C (ambient). Planið var að færa hann yfir í lagnaganginn sem er vel heitur. (Er með blow-off tube).
[EDIT]: Opnaði fram á lagnagang þegar 24 tímar voru liðnir í gerjun (tengist þvottahúsinu, þ.e. gerjunarhúsinu) og hitinn í þvottahúsi er kominn upp í rúmlega 24°C (komnir 48 tímar). Langar að færa hann yfir í heitara rými, en hann bubblar svo mikið að ég þori varla að trufla gerið. Athugasemdir vel þegnar!